Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 8. maí kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. 

Linda Kristjánsdóttir og Rósa Marinósdóttur sátu fundinn um síma.

 

Dagskrá

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Lögð fram fundgerð frá 3. apríl 2019 og hún samþykkt.

 

  1. Ráðning framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar.

Þura Björk Hreinsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar á HVE.

Þura Björk útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur BSc árið 2007 og kláraði meistaranám í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2017. Þura Björk hefur verið starfandi hjúkrunarforstjóri á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða frá því í janúar en var áður deildarstjóri á biðdeild HVE og handlækningadeild HVE frá því í júlí 2014.

Átta umsóknir bárust um starfið.

Ráðgert er að Þura Björk hefji störf 1. júní n.k.

 

  1. Framvinda starfsáætlunar 2019-2021.

Fjallað um framvindu við gerð starfsáætlunar árin 2019 til 2021.

 

  1. Fjárveiting til tækjakaupa.

Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt HVE 70 m.kr. til tækjakaupa árið 2019.  Fram kom að reynt verður að vinna niður tækjakaupalistann eins og hægt verður, gera má ráð fyrir að keyptur verði ýmis smærri tæki og búnaður fyrir um 40 m.kr. og 2 röntgentæki fyrir Stykkishólm annarsvegar og í Ólafsvík hins vegar, tækið fyrir Ólafsvík verður þó líklega keypt á næsta ári.  Umræða var um tilboð sem komið hefur vegna röntgentækja.

Nú þegar hefur verið fjárfest í búnaði fyrir um 6,7 m.kr.; hjartalínuritstæki á lyflækningadeild fyrir 1,7 m.kr., móðurborð í sónar á kvennadeild fyrir 620 þús.kr., storkutæki á rannsókn fyrir 1,2 m.kr., 4 ræstivagnar fyrir 760 þús. kr., spirometria í Ólafsvík fyrir 236 þús. kr., glaðloft á kvennadeild fyrir 1,5 m.kr., hitaskápur fyrir blóð á svæfingadeild fyrir 370 þús kr. og sog á skiptistofu fyrir 200 þús. kr.

  1. Gjafir til HVE

Á aðalfundi Hollvinasamtaka HVE 4. maí sl. færðu samtökin HVE 5 rúm af gerðinni Eliganza 2 ásamt rúmdýnum og rúmgálgum, að verðmæti samtals um 2,5 m.kr.

 

  1. Ársskýrsla 2018

Rætt um ársskýrslu ársins 2018, en unnið er að loka frágangi hennar.

 

  1. Krabbameinsáætlun – kynningarbréf frá heilbrigðisráðuneytinu

Lagt fram ljósrit bréfs Heilbrigðisráðuneytisins til Landspítala, dags. 17. apríl 2019 um vinnu að verkefnum krabbameinsáætlunar. En þar óskar ráðuneytið eftir stöðumati frá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna forgangsmarkmiða.

 

  1. Uppsögn samstarfssamnings um dagvistun á Hvammstanga

Lögð fram uppsögn samstarfssamnings um dagdvöl aldraðra á Hvammstanga, dags. 29. apríl 2019.

En undanfarna mánuði hafa stjórnendur HVE reynt að fá sveitarstjórnina á Hvammstanga til að vinna að breytingu á samningi án árangurs, sérstaklega er snýr að ákvæði um akstur með skjólstæðinga í dagvistunn sem skarast á við vaktir sjúkraflutninga hjá HVE. Uppsögnin tekur gildi eftir 6 mánuði.

  1. Verkefni HVE í fjarheilbrigðisþjónustu

Lögð fram skýrsla og tillögur starfshóps um áframhaldandi uppbyggingu og framþróun á skipulagi og framkvæmt fjarheilbrigðisþjónustu um allt land. Skýrslan ber heitið Fjarheilbrigðisþjónusta  –  Í takt við nýja tíma.

Rætt um málefnið, lagt var til að skoða sérstaklega fjarþjónustu næringarfræðinga, sálfræðinga og að einhverju leiti vegna sjúklinga við langvinna sjúkdóma og heimahjúkrun.

 

  1. Biðlistaaðgerðir.

Rætt um biðlistaaðgerðir vegna liðskiptaaðgerða. Fram kom að það sem af er ári hefur orðið umtalsverð fjölgun sjúklinga sem bíða eftir liðskiptum, eða um 57 talsins, í dag bíða 66 eftir liðskiptum í mjöðm og 143 eftir liðskiptum í hnjám, samtals 209 talsins.

Samþykkt að funda með skurðstofu vegna málsins næstu daga.

 

  1. Starfsemi sumarsins

Rætt um starfsemi sumarsins.  Fram kom að nauðsynlegt verði að loka legudeildinni í Stykkishólmi frá 15. júní til 29. júlí þar sem ekki tókst að fá inn afleysingu. Annars staðar virðist vera að takast að skipuleggja afleysingar í sumar í megin atriðum.

 

  1. Mannauðsmál

Rætt um starfsmannamálefni og þjónustu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.