Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 9. september 2020 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt tveggja fundargerða.
Lagðar fram fundargerðir frá 26. ágúst og 2. september 2020 og þær samþykktar.
- Gæðauppgjör 2019.
Farið yfir og fjallað um gæðauppgjör á vegum embættis Landlæknis.
- Húsnæðismál.
Rætt um húsnæðismál og endurbætur.
Legudeildir á Akranesi.
Fjallað var um fund HVE með Ríkiseignum og hönnuðum vegna væntanlegra framkvæmda á A- og B-deila næsta ári. Nú liggur fyrir að þarfagreining mun liggja fyrir í næstu viku, teikningar og hönnun mun liggja fyrir í fyrstu viku í október, úboðsgögn eiga að verða tilbúinn í lok desember.
Heilsugæslan á Akranesi.
Rætt um húsnæðismál á heilsugæslunni á Akranesi, ákveðið hefur verið að heimahjúkrun mun flytja niður í iðjuþjálfun í kjallara, iðjuþjálfun mun verða skipt í tvö herbergi vegna þessa. Ungbarnaeftirlit fer í þá aðstöðu sem heimahjúkrun er núna og þannig verður hægt að útbúa tvær góðar skrifstofur fyrir lækna þar sem aðstaða ungbarnaverndar er núna.
Stykkishólmur.
Unnið er að samkomulagi við verkbjóðendur vegna framkvæmda þar, en stefnt er að því að Framkvæmdasýslan gangi frá samningi á allra næstu dögum. Tveir buðu í verkið. Þá er stefnt að því að seinni hluti þessara endurbóta, þ.e. legudeildirnar, verði boðin út í desember n.k.
Skrifstofa og slysastofa.
Ákveðið hefur verið að skrifstofa fari út úr húsi og fer í leiguhúsnæði á þriðju hæði að Kirkjubraut 28. Með þessari tilfærslu verður hægt að færa skrifstofur lækna og útbúa rými fyrir speglunaraðstöðu. Þá munu tölvumenn einnig komast úr kjallara í starfsmannabústað og inn þar sem skrifstofur bókara eru í dag. Gert er ráð fyrir að skrifað verði undir leigusamning fimmtudaginn 10. september.
- Tæki og búnaður, staða á forgangslista árins.
Fjallað um og lagður fram forgangslisti ársins varðandi tæki og búnað. Fram kom að búið væri að kaupa búnaði fyrir um 97,5 m.kr. Þar af vegur röntgentækið á Akranesi þyngst, 55 m.kr. og varaaflgjafar á Akranesi og Hvammstanga fyrir 26,4 m.kr. Þá hafa borist gjafir fyrir um 11,6 m.kr.
Fram kom að ekki er til fjármagn til frekari tækjakaupa á árinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:55.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.