Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, mánudaginn 10. mars 2025 kl. 9:30.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir og Sigurður E. Sigurðsson.
Ásgeir Ásgeirsson og Sigurður Þór Sigursteinsson í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 19. febrúar 2025 lögð fram og samþykkt með örlitlum breytingum.
- Staða rekstrarfunda með deildum
Farið yfir stöðuna á fundum sem framkvæmdastjórn boðaði með yfirmönnum deilda/starfsstöðva til að fara yfir rekstrarstöðu og rekstraráætlun ársins. Frá því í lok janúar er búið að halda 22 fundi með 30 stjórnendum HVE. Eftir er að halda sjö fundi, ákveðið að halda þrjá fundi í lok næstu viku þegar HG og SÞS verða komin til baka úr stuttu leyfi.
- Erindi frá Persónuvernd
Lagt fram erindi frá Persónuvernd dags. 27. febrúar 2025 og barst forstjóra í bréfpósti 4. mars.
- Endurskipan í Sýkingarvarnanefnd HVE
HG tengiliður framkvæmdastjórnar við Sýkingavarnanefnd HVE kynnti skipan nefndarinnar til næstu tveggja ára. Guðrún Hróðmarsdóttir hjúkrunarfræðingur sem verið hefur formaður nefndarinnar frá árinu 2007 gaf ekki kost á sér lengur. Við formennsku tekur Hjördís Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur. Aðrir í nefndinni gáfu kost á sér til áframhaldandi setu, þetta eru Anna Þóra Þorgilsdóttir hjúkrunarfræðingur, Ingi Karl Reynisson yfirlæknir og Anna Signý Árnadóttir ræstingastjóri.
Sýkingavarnanefnd HVE starfar samkv. reglugerð um sóttvarnaráðstafanir (nr. 817/2012) þar sem segir í 3. gr. að á sjúkrahúsum skuli starfa sýkingavarnanefndir sem skrá sýkingar í tengslum við veitingu heilbrigðisþjónustu og stuðla að sýkingavörnum innan stofnananna.
Hlutverk nefndarinnar er eftirfarandi:
- Yfirumsjón með sýkingavörnum innan HVE á Akranesi og skipulag aðgerða ef upp koma sýkingafaraldrar.
- Vinna að forvörnum með fræðslu og leiðbeiningum fyrir starfsfólk um smitgát og sýkingavarnir.
- Gefa út verklagsreglur og verklýsingar varðandi sýkingavarnir í gæðahandbók.
- Ákveða sótthreinsunaraðferðir sem nota skal.
- Ráðgjöf um sýkingavarnir og aðstoð fyrir deildir/starfsmenn HVE.
- Eftirlit með algengi spítalasýkinga og ákveða skráningaraðferðir.
- Eftirlit með stunguóhöppum og utanumhald skráninga/tilkynninga.
Framkvæmdastjórn færir Guðrúnu bestu þakkir fyrir gott starf í nefndinni sem hún sinnti af miklum metnaði og vandvirkni m.a. á erfiðum tíma í gegnum allan Covid-19 faraldurinn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40
JFJ ritaði fundargerð.