Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 10. júní 2020 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:           Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.       

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 3. júní  lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjármál og rekstur, 5 mánaða uppgjör.

ÁÁ lagði fram og fjallaði um rekstur fyrir tímabilið janúar til og með maí 2020.  Fram kom að halli af rekstri næmi nú 67,8 m.kr. eða 3% af tekjum.  Nefndi að á þessu tímabili næmi kostnaður vegna covid um 40 m.kr. og að á árinu hafi borist 29 m.kr. bakreikningur vegna húsaleigu frá Ríkiseignum. Án þessara atriða væri rekstur í jafnvægi.

  1. Vinnuhópur um öldrunarþjónustu á Vesturlandi á velferðarstefnu Vesturlands

Rætt um verkefni vinnuhóps um öldrunarþjónustu á Vesturlandi sem vinna á tillögur til að efla öldrunarþjónustu með auknu samráði og samstarfi varðandi heimahjúkrun og heimilishjálp, innleiðingu á nýrri tækni í öldruanrþjónstu og nýsköpun. Hópurinn mun hafa heimild til að ráða sér ráðgjafa með sérþekkingu á öldrunarþjónustu.  Þura B. Hreinsdóttir hefur verið skipuð í vinnuhópinn frá HVE.

 

  1. Reglur um útgefið efni á HVE.

JFJ lagði fram og fjallaði um drög að endurskoðuðum reglum um útgefið efni á vegum HVE.  Markmiðið með reglunum er að tryggja samræmi og að gæði efnis sem gefið er út af HVE.  Svo sem á Ytri vef, innri vef, fræðslubæklingar og Workplace og Facebook.

Málefnið verður skoðað frekar.

 

  1. Mannauðsmál
  2. Boðað verkfall Fíh 22.júní n.k.
  3. Stytting vinnuviku/betri vinnutími.
  4. Krabbameinsskoðanir.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.