Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn og umsjónarmönnum starfsstöðva miðvikudaginn 10. nóvember 2021 kl. 14:00
Mætir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson, Vilborg Lárusdóttir, Jóhann Arngrímsson, Dagný Ósk Guðlaugsdóttir, Viktoría Sif Viðarsdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Hrefna Frímannsdóttir og Rósa Marinósdóttir.
Dagskrá.
- Covid- staðan í umdæmi HVE.
ÞB sagði að ástandið á landinu öllu hafi aldrei verið eins slæmt, en bólusetningar hafi í meginatriðum komið í veg fyrir mikil veikindi. Ástandið heldur að lagast á Vesturlandi, sami fjöldi í einangrun 174 í dag en voru 173 í gær og 199 eru í sóttkví núna. 132 í einangrun á Akranesi og 127 í sóttkví. Um 130 smit hafa greinst á Akranesi vegna samkomu á skemmtistað. Þó komu 11 ný smit upp á Akranesi í gær, en einhverjir farið út af lista á móti. Faraldurinn í Búðardal er genginn niður, aðeins 4 eftir í sóttkví. 8 eru í einangrun í Grundarfirði og 40 í sóttkví, ekkert hefur bæst við, öll 60 prófin sem tekin voru þar í gær voru neikvæði.
Miklir flutningar hafa verið í sóttvarnarhús og á göngudeild á Landspítala.
Vestuland er næst á eftir höfuðborgarsvæðinu með fjölda smita.
ÞBH sagði frá því að bólusetningar væru nú í fullum gangi. Allir að setja upp örvunarbólusetningar og reynt er að fá þá inn í bólusetningu sem ekki hafa farið. Sagði að þátttaka á Hvammstanga hafi ekki verið nægjanlega góð. Unnið þétt að þessum málum.
Fram kom hjá Dagnýju að hún þakki fyrir að ekki hafi orðið fjölgun á smitum, vinnustaðurinn lokaði strax og ákveðið var að loka skólum sem er vel. Allir sem hafa bæst eftir fyrstu smit voru komnir í sóttkví. Tekin voru 39 PCR próf í dag. Kemur ljós í kvöld með niðurstöðu.
Ljóst er að áríðandi er að bregðast strax við með svona lokunum. Kom fram hjá henni að hún hafi fengið hjálp frá Stykkishólmi.
Rósa sagði að nokkur aukning hafi verið á smitum í Borgarnesi, en þar hafði líka tekist að bregðast fljótt við.
Fram kom að búið væri að skima fleiri nú en á þriggja mánaða tímabili, ágúst, september og október.
- Upplýsingar frá fundi með HRN sem verður í fyrramálið þar sem m.a. rekstur og starfsáætlun eru á dagskrá.
Farið var yfir fund framkvæmdastjórnar með heilbrigðisráðuneytinu nú í morgun. Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Önnur mál.
HF sagði meira og minna allt gott að frétta, covidskot kom upp í Hólminum fyrir tveimur vikum síðan en það hafi gegnið niður nú. Bólusetningar ganga vel. Sagði að framkvæmdir væru nú búnar læknastofu megin í húsinu, nú væri verið að vinna á öðrum stöðum, afgreiðslu og fleira. Sjúkradeildin er lokuð enn vegna framkvæmda, stefnt er að skilum þann 25. nóvember n.k. Fjallað um bjöllukerfi, innréttingar og fleira. En unnið er að lausnum á ýmsum atriðum við eða eftir opnum. Nokkur biðlisti er á endurhæfingunni. Tveir nemar hafa verið í verknámi undanfarnar vikur. Sagði frá því að nokkrir hjúkrunarfræðingar hafi verið að sinna sýnatökum, bólusetningum og fleira um starfssvæði HVE. Þá eru hjúkrunarfræðinar að vinna með smitrakningarteyminu á landsvísu.
VSV segir að rólegt sé í Ólafsvík vegna smita, ágætlega hefur gengið í bólusetningum. Sagði að gott hafi verið að fá aðstoð starfsmanna frá Stykkishólmi.
DÓG sagði að vel gengið að bólusetja, innflúensu bólusetningar nánast búnar og covid bólusetningar ganga ágætlega. Sagði gott að geta leitað á aðra staði með aðstoð. Þá kom fram hjá henni að mikið væri um erfið veikindi undanfarnar vikur, mikið álag er núna.
Fram kom hjá JBA að mikið hafi verið um að vera vegna covid faraldursins sem var í Búðardal, þakkaði fyrir þá viðbót sem kom frá Akranesi og Stykkishólmi.
Á Hólmavík hefur staðan verið ágæt. Rætt um hraðpróf og fleira t.d. tengt viðburðurðum. Vel hefur gengið með bólusetningar.
JFJ minnti á sóttvarnir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.