Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. mars 2026 kl. 9:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 4. mars 2026 lögð fram og samþykkt.
- Rýni stjórnenda á jafnlaunavottun.
VL fjallaði um jafnlaunavottun og jafnréttisáætlun, úttekt mun fara fram á vegum BSI í næstu viku. Fram kom að launagreining sem tók mið af nóvemberlaunum væri 0,4% körlum í vil, sem er það lægsta sem mælst hefur frá því jafnlaunavottun hófst, á síðasta ári var frávikið 2,1% körlum í hag. Jafnlaunamarkmið ársins er því náð.
VL lagði fram tillögu um sama jafnlaunamarkmið fyrir árið 2027.
- Stefnt skal að því að óútskýrður kynbundinn launamunur verði 0% og frávik ekki meira en 5%.
- Fylgni milli starfaflokkunar og launa (R2) verði hærra en 94%.
Framkvæmdastjórn samþykkir markmiðið.
- Sálfræðiþjónusta fyrir fullorðna.
Rætt um samning við Áfalla- og sálfræðimiðstöðina í Hamraborg um almenna sálfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Þá kom fram að nú hafa komið 4 umsóknir um stöður sálfræðinga fyrir fullorðna.
Málið verður skoðað frekar í samráði við yfirsálfræðing.
- Skilvirk háls- og bakþjálfun HVE og PTassistance.
SES fjallaði um samning HVE og PTassistance um fjarsjúkraþjálfun. Haldið verður áfram með verkefnið í samstarfi við fjársýslu ríkisins vegna fjármögnunar.
- Samráðshópur vegna almyrkva 12. ágúst 2026.
SES sagði frá fundi með fulltrúum heilbrigðisstofnunum, lögregluembættum, almannavörunum og fleiri hagaðilum vegna skipulags og öryggis í kringum almyrkvann sem verður þann 12. ágúst n.k., sérstaklega vegna útihátíðar sem hefur verið skipulögð á Snæfellsnesi, almyrkvahátíð 2026 á Hellissandi.
Skipulagning er í gangi um aukna þjónustu sjúkraflutninga, læknisþjónustu og fleira.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:15
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.