Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. nóvember kl. 9:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinóasdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Júlínna Einarsdóttir sat fundinn til kl. 10:00 vegna mannauðsmála sem tekin voru fyrir í fyrri hluta fundarins.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 4. nóvember var lögð fram og samþykkt.
- Covid – staðan
Fjallað um covid stöðina. Síðustu starfsmenn og sjúklingar á Akanesi fóru í sýnatöku í gær, þriðjudag. Þannig hafa allir reynst neikvæðir eftir þessa uppákomu.
Þá kom fram hjá ÞB að staðan væri almennt að lagast á landsvísu. Nú eru 86 í sóttkví á okkar svæði, 30 á Akranesi og 56 í Borgarnesi. Á landsvísu eru 1.076 í sóttkví og 569 í einangrun, 70 liggja á sjúkrahúsi og þar af 3 á gjörgæslu. 24 hafa látist frá upphafi faraldursins.
Þá kom fram að heimsóknir til sjúklinga væru enn bannaðar á Akranesi og á Hvammstanga, þær eru leyfðar með takmörkunum á öðrum stöðum hjá okkur. Þessar reglur verða endurskoðaðar á fundi viðbrgaðsstjórnar á morgun, fimmtudag.
ÞBH þakkaði póstinn frá ÞB til starfsmanna á Akranesi sem lentu í sóttkví.
- Stefnuskjal 2021 – áframhaldandi yfirferð
Farið yfir stefnuskjal fyrir árin 2021 til 2023.
Þá var farið yfir tækjalista, bæði vegna kaupa á tækjum nú í ár og þau tæki sem óskað hefur verið eftir.
- Mannauðsmál
Fram kom að hjúkrunarfræðingur sem ætlaði að hefja störf á Hólmavík hafi hætti við starfið degi áður en viðkomandi átti að mæta til starfa. Yfirhjúkrunarfræðingur í Ólafsvík mun hætta störfum nú um áramót.
Þá var rætt um breytingar um sýnatöku vegna krabbameinsskoðana. Fram kom að Heilsugæslan á Höfuðborgarsvæðinu muni stýra þessu verkefni, en þetta mun auðvitað hafa áhrif á heilsugæslustöðvarnar.
- Styrkur til félagslegra þátta í þágu starfsmanna HVE.
Fjallað um styrk til félagslegra þátta í þágu starfsmanna. Samþykkt að JE vinni að nýjum drögum að reglum um styrki vegna félagslegra þátta og íþróttaiðkunnar.
Þá var samþykkt að gefa starfsmönnum einhverja gjöf nú á aðventu í ljósi þess að ekki voru neinar árshátíðir og þess háttar nú í ár. Stefnt að senda þetta út til starfsmanna fimmtudaginn 19. nóvember.
- Íþróttastyrkur til starfsmanna
Fjallað um íþróttastyrk til stafsmanna.
Samþykkt að hafa sömu fjárhæð til starfsmanna á næsta ári, þ.e. kr. 8.000,-.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.