Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. desember 2019 kl. 19:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 4. desember lögð fram og samþykkt.

 

  1. Erindi frá heilbrigðisráðuneytinu.

Lagt fram erindi frá heilbrigðisráðuneytinu frá 9. desember þar sem fram kom að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið að veita HVE aukafjárveitingu til að koma til móts við neikvæða afkomu af rekstri. Heilsugæslusviðið fær 46 m.kr. og sjúkrasviðið 60,4 m.kr. Framlagið til sjúkrasviðs jafngildir beiðnum HVE um uppgjör á árlegum greiðslum vegna lífeyrisskuldbindinga.

 

  1. Varafl fyrir HVE Akranesi – staðan.

Rætt um varaafl fyrir HVE Akranesi, fram kom að JFJ, ÁÁ og Halldór B. Hallgrímsson fóru í kynnisferð til heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til að skoða varaaflsbúnað þar.  Unnið verður að því að fjárfesta í álíka búnaði og var þar sem tryggja megi rafmagn þegar það fer af.  Forathugun gerir ráð fyrir að búnaður og uppsetning nemi um 10 m.kr.

Jafnframt var rætt um slíka aflgjafa fyrir aðra staði í okkar röðum, en þar virðist það helst vera Hvammstangi þar sem pottur er brotin.  Rafmagn hefur t.d. legið niðri í meira enn hálfan sólarhring á hjúkrunardeildinni þar þegar þetta er skrifað.   Í Stykkishólmi er varaaflgjafi í bænum og í Hólmavík er stofnunin tengd inn á varaaflgjafa á vegum bæjarins þar og Rarik.

 

  1. Afhending gjafar frá Oddfellow.

Miðvikdaginn 27. nóvember sl. afhenti líknarsjóður Rebekkustúkunnar Ásgerðar HVE á Akranesi formlega að gjöf þrjú sjúkrarúm sem bárust fyrir stuttu. Anna Þóra Þorgilsdóttir aðstoðardeildarstjóri á lyflækningadeild sat kaffiboð stúkunnar þetta kvöld ásamt fulltrúum Höfða og Brákarhlíðar sem einnig fengu afhentar gjafir.

Anna Þóra tók við gjafabréfi fyrir hönd stofnunarinnar og færði Rebekkustúkunni innilegar þakkir fyrir þessa veglegu gjöf sem er mikilvægur áfangi í að bæta aðbúnað sjúklinga og starfsmanna.

Oddfellowreglurnar Egill og Ásgerður hafa stutt dyggilega við starfsemi HVE á Akranesi á sl. ári en í mars tóku fulltrúar HVE á móti höfðinglegum gjöfum í tilefni 200 ára afmælis Oddfellow.

 

  1. Heilsueflandi móttökur – heilsuvernd og heilsuefling eldra fólks.

Lagt fram og fjallað um erindi ráðuneytis dags. 29. nóvember 2019 um heilsueflandi móttökur – heilsuvernd og heilsuefling eldra fólks og fólks með fjölþættan og eða langvinnan heilsuvanda.

En heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 200 m.kr. til að koma á fót heilsueflandi móttökum um allt land innan heilsugæslunnar. Fjármagninu veður dreift á gegnum fjármögnunarkerfi heilsugæslunnar fyrir allt landið á næsta ári.

  1. Forúttekt vegna jafnlaunavottunar.

Forúttekt vegna jafnlaunavottunarinnar fór fram þann 9. desember af úttektaraðilanum BSI á Íslandi.  Fram kom að forúttektin hafi komið vel út, aðeins kom fram tvær athugasemdir og tvær ábendingar um tækifæri.  Úttektaraðili nefndi sérstaklega að mannauðsstjóri hafi unnið sérstaklega vel að þessu máli og að greinilegt væri að stjórnendur á HVE hafi nálgast málið með góðum hætti.

 

  1. Mannauðsmál
    1. Nýliðakynningar.

ÞBH fjallaði um viðræður við kvikmyndagerðarmann um gerð kynningarmyndbands fyrir nýja starfsmenn, „nýliðamyndband“.

  1. Námsstöður heilsugæslulækna.

ÞB sagði frá því að ekki hafi komið fram gildar umsóknir um námsstöðurnar.

  1. Staða yfirlæknis á Snæfellsnesi.

Ekki hefur kom fram umsókn um stöðu yfirlæknis á Snæfellsnesi.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:17

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.