Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. febrúar 2020 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 5. febrúar 2020 lögð fram og samþykkt.
- Upplýsingar af stöðufundi í heilbrigðisráðuneytinu 10. febrúar
JFJ fjallaði um stöðufund sem hún og ÁÁ sóttu í heilbrigðisráðuneytinu sem haldin var þann 10. febrúar s.l. Helstu málefni fundarins voru eftirfarandi:
- Viðbragðsáætlun vegna kórónafaraldurs.
- Starfsáætlun stofnunar fyrir árið 2020.
- Mælikvarða/r eftirfarandi lykilþátta:
- Starfsfólk
- Gæði
- Þjónustuframleiðsla (ACG/DRG)
- Önnur mál
Farið yfir glærur og helstu málefni fundarins.
- Viðbragðsáætlun og staða undirbúnings vegna kórónaveirufaraldursins.
Fjallað um viðbragðsáætlun og stöðu undirbúnings vegna kórónaveirufaraldursins, COVID-19.
Umræða var um birgðir á hlífðarbúningum og möskum. Mikil umræða var um málefnið og viðbrögð.
Ítrekað að útbúa spjöld fyrir starfsmenn um stöðluð svör um málefnið.
ÞB. fer í frí þann 3. mars og verður í þrjár vikur, LK mun taka við hlutverki hans gagnvart sóttvörnum á meðan.
Þá var rætt um viðbrögð ef stór fjöldi starfsmanna verður frá störfum vegna mögulegra veikinda.
- Staða framkvæmda á HVE Akranesi.
Rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir og tímasetningar á Akranesi, sérstaklega tengt A- og B-deild, skurðstofum og sjúkrabílaskýli.
- Mannauðsmál:
5.1 Staða iðjuþjálfa.
Rætt um stöðu iðjuþjálfa, stefnt er að því að hefja viðræður við alla umsækjendur nú í vikunni.
5.2 Lokun biðdeildar.
Rætt um lokun biðdeildar, fram kom að við lokun deildarinnar munu síðustu sjúklingarnir á biðdeild fara á Sléttuveg þann 2. mars n.k. Gera má ráð fyrir að það verði um 7 eða 8 sjúklingar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:15
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.