Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. júní 219 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá
- Samþykkt síðustu tveggja fundargerða.
Fundargerðir frá 15. maí og 29. maí 2019 lagðar fram og samþykktar.
- Rekstrarmálefni.
ÁÁ fjallaði um rekstur vegna tímabilsins janúar til og með apríl. Fram kom að rekstur væri jákvæður um 24 m.kr. þetta tímabil eða um 1,4%. Aðalástæðan er sú að húsaleigan hefur ekki hækkað í samræmi við áætlanir þar um, sú hækkun mun koma inn þegar líður á árið.
- Lok tilraunarverkefnis um styttingu vinnuvikunnar á lyflækningadeild.
Fjallað um lok tilraunaverkefnis um styttingu vinnuvikunnar á lyflækningadeild sem stóð yfir tímabilið 1. september 2018 til 31. maí 2019. Von er á skýrslu um niðurstöðu verkefnisins. Fram kom að starfsmenn væru ánægðir með þetta fyrirkomulag.
- Fundur með heilbrigðisráðuneyti þann 19. júní um liðskiptaaðgerðir.
Farið yfir undirbúning vegna fundar með heilbrigðsráðuneytinu hér vegna hugmynda um aukinn fjölda liðskiptiaðgerða á Akranesi.
Samþykkt að farið verði sérstaklega yfir málefið kl. 13:30 nú í dag.
- Helstu verkefni Þróunarmiðstöðvarinnar – bréf frá heilbrigðisráðuneytinu til upplýsinga.
Lagt fram bréf heilbrigðisráðuneytis dags. 13. maí 2019 um helstu verkefni Þróunarmiðstöðvarinnar.
- Heilsugæslan á Snæfellsnesi – umræða.
Rætt um heilsugæsluna á Snæfellsnesi.
Þá var umræða um nýtt reikni- og greiðslulíkan fyrir heilsugæslustöðvar, t.d. hvort það henti að færa fjármuni á milli starfsstöðva hjá HVE.
- Mannauðsmál.
- Uppsögn lyfjafræðings.
Sandra Steingrímsdóttir sem verið hefur í fæðingarorlofi hefur sagt upp starfi sínu frá og með næstu mánaðarmótum. Auglýst verður hið fyrsta eftir lyfjafræðingi.
- Mönnun á Snæfellsnesi frá haustinu.
Fjallað um mönnun á Snæfellsnesi í sumar, en erfiðlega hefur gengið að fá hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa á svæðinu.
- Mönnun og afleysingar nú í sumar.
Rætt um afleysingar almennt nú í sumar.
- Eftir sumarfrí
- Rætt um fyrirhugaða fundi að loknu sumarleyfi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:10
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.