Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. október 2022 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir, Björn Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson. Þórir Bergmundsson er í veikindafríi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 21. september 2022 lögð fram og samþykkt.
- Fjárlagafrumvarp 2023 og fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar
Fjallað um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2023 og fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar.
- Ný mælaborð í Qlick
Farið yfir nýtt mælaborð í qlick. Von er á að fjárhags- og launaupplýsingar komi inn næstu daga.
- Úttekt EL í næstu viku á heilsugæslusviði
Fjallað um úttekt EL í næstu viku á heilsugæslusviði. Umbeðnar upplýsingar hafa verið sendar til embættisins. Næsta skref í úttektinni er að embættið hefur boðað heimsókn á staðina í næstu viku, mánudag og þriðjudag. Byrjað er á Akranesi á mánudaginn kl. 8:30 með fund með stjórnendum. Fara svo eftir hádegi í Borgarnes og Stykkishólm. Þriðjudaginn fer embættið í Ólafsvík, Grundarfjörð, Hvammstanga og Hólmavík. Búðardalur var ekki nefndur í pósti embættisins.
- Endurskipan í sýkingavarnanefnd
Eftirtaldir hafa verið skipaðir að nýju í sýkingavarnanefnd.
Guðrún Hrómasdóttir formaður, Anna Þóra Þorgilsdóttir, Ingi Karl Reynisson og Anna Signý Árnadóttir.
Sýkingavarnarnefnd er skipuð vegna sjúkrahússtarfsemi samkvæmt reglugerð.
- Skipan umdæmislæknis sóttvarna á HVE og svæðislæknis sóttvarna á Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands tilnefnir Þórð Ingólfsson yfirlæknir á heilsgæslustöð HVE í Búðardal sem umdæmislækni sóttvarna á Vesturlandi í stað Þóris Bergmundssonar.
Þá er Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir á heilsugæslustöð HVE á Akranesi tilnefndur svæðislæknir fyrir Akranes.
Umdæmis- og svæðislæknar sóttvarna á Vesturlandi
Umdæmislæknir: Þórður Ingólfsson
Svæðislæknar:
Jóhannes Bergsveinsson, Akranesi
Geir Karlsson, Hvammstanga
Skipunin hefur ekki verið staðfest af heilbrigðisráðherra.
- Starfsmannafundir framundan
Fundað verður með starfsmönnum í Ólafsvík fimmtudaginn 20. október n.k. Stefnt verður að farið verði í Stykkishólm að auki. Höfum tvo fundi í Stykkishólmi til þæginda fyrir starfmenn á meðan við rekum hjúkrunardeildina í öðru húsi.
Samþykkt að hafa fund með stjórnendum á Akranesi miðvikudaginn 19. október 2022.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:37
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.