Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 13. febrúar 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna FJóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 6. febrúar 2019 lögð fram og samþykkt.
- Setning forstjóra.
Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í stöðu forstjóra frá og með 1. febrúar að telja. Staðan var auglýst þann 27. nóvember 2018 og sóttu fjórir um stöðunna, auk Jóhönnu þau Kristín Sigríður Þórarinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur og Skúli Þórðarson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur.
Fundarmenn óska JFJ til hamingju með stöðunna og fagna þessari niðurstöðu.
- Jafnlaunavottun – upplýsingar frá fundi 1. febrúar.
Fjallað um jafnlaunavottun og farið yfir málefni og gögn frá fundi þann 1. febrúar sem skipulagður var og haldin af Landsspítalanum. Fundarmenn sammála um að taka ekki tilboði sem barst um skipulag og innleiðingu jafnlaunavottunar, m.a. vegna tíma og verðs. Unnið verður að verkinu undir stjórn mannauðsstjóra í samráði við Landspítala.
- Erindi frá SÍ – ósk um tengilið.
Lagt fram erindi frá Maríu Heimisdóttur forstjóra SÍ frá 11. febrúar. Þar óskar hún eftir tengilið frá stofnunum á landsbyggðinni til að fjalla um forgangsröðun mismunandi tegunda þjónustu í heimabyggð, um nýtingu fjarþjónustu og um samþættingu þjónustu í heimabyggð og utan hennar.
Samþykkt að tilnefna Ásgeir Ásgeirsson sem tengilið.
Farið verður yfir málefnið á næsta fundi framkvæmdastjórnarfundi.
- Tækjamál – gjöf frá Oddfellow o.fl.
Fjallað um tækjamál. Oddfellow stúkurnar á Akranesi hafa fært A- og B-deild 5 fullkomin rúm að gjöf. 3 rúm á A-deild og 2 rúm á B-deild.
Þá hefur verið keypt 3 ára storkutæki fyrir Rannsóknadeild.
Rætt um spirometriu sem vantar fyrir Ólafsvík. Rætt var um tengingar og fleira við sjúkraskrárkerfin.
Útboð á röntgentæki á Akranesi hefur en frestast vegna breytinga hjá Ríkiskaupum.
- Mannauðsmál.
6.1 Staða framkvæmdastjóra hjúkrunar.
Rætt um stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar, en Rósa Marinósdóttir núverandi framkvæmdastóri mun fara til fyrri starfa. Samþykkt að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar til 5 ára.
6.2 Deildarstjóri Kvennadeildar.
Anna Björnsdóttir hefur sagt upp stöðu sinni frá og með 1. maí 2019. Staðan verður auglýst á næstu dögum til 5 ára.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.