Fundur haldin hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 13. nóvember 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Vilborg Lárusdóttir mannauðsstjóri sat fundinn.
Dagskrá.
- Fundargerð frá 6. nóvember 2019.
Fundargerð frá 6. nóvember lögð fram og samþykkt.
- Ársáætlun 2020.
Rætt um ársáætlun HVE 2020. Fram kom að vonast væri eftir að hægt verði að skila áætlun n.k. föstudag.
- Stefnuskjal 2020 sent 11.nóvember – lagt fram.
Lagt fram stefnuskjal HVE fyrir árin 2020 – 2022.
- Nýr innri vefur.
Nýr innri vefur starfsmanna kynntur, nýi vefurinn er mun einfaldari að gerð en sá fyrri. Á vefnum er mjög auðvelt fyrir starfsmenn að sækja sér ýmislegt efni, upplýsingar og aðgang að nauðsynlegum kerfum. Svo sem tengingu við UptoDate, gæðahandbók, vefverslun, vinnustund, ýmis eyðublöð, símaskrár, vefpóst starfsmanna, beiðnir um tölvuaðstöð og fleira mætti telja. Hin eiginlegi starfsmannavefur verður áfram í Workplace.
- Mannauðsmál:
- Starfslok vegna aldurs – kveðja til starfsmanna. Samþykkt að hafa móttökur til að kveðja starfsmenn með svipuðu sniði og verið hefur. Fram kom að 17 hætta á Akranesi, 2 í Stykkishólmi og 1 í Ólafsvík. Miðvikudaginn 4. desember verða starfsmenn á Akranesi kvaddir, fundinn verður dagur í desember í Stykkishólmi og í janúar í Ólafsvík.
- Rætt um jólaglaðning til starfsmanna.
- Rætt um mönnun á skurðstofu og svæfingu í tengslum við aukningu á liðskiptaaðgerðum.
- Rætt um ósk starfsmannafélagsins á Akranesi í tengslum við heilsuviku sem halda á í janúar n.k.
- Erindi Gísla Björnssonar, útköll og mönnun bakvakta í sjúkraflutningum á HVE Akranesi.
Gísli Björnsson kom til fundar og fylgdi eftir erindi sínu.
Þá var rætt um útboð RKÍ vegna endurnýjunar á sjúkrabílum. Einnig var almenn umræða var um sjúkraflutninga á svæðinu.
- Áríðandi tækjakaup.
Farið yfir tækjakaupalistann.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:25
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.