Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 14. apríl 2021 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinosdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Vilborg Lárusdóttir sat einnig fundinn.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundur gerð frá 7. apríl 2021 lögð fram og samþykkt.
- Covid- staðan
Rætt um Covid stöðuna, fram kom hjá ÞB að nú væri 25 manns í sóttkví á Vesturlandi, 20 á Akranesi og 5 í Borgarnesi. Þrjú smit eru á svæðinu. Gert er ráð fyrir að töluvert verði af sýnatökum nú um helgina.
Umræða var um mögulegra breytingar á matsölum vegna breytinga á fjölda í matsal.
Þá kom fram að um 900 Vestlendingar verði bólusettir í dag og á morgun, eða um 5% af íbúafjölda. Eftir þessa viku verði um 20% búnir að fá fyrri eða báðar bólusetningarnar.
- Jafnlaunavottun – árleg endurskoðun
VL fjallaði um jafnlaunavottun, en nú fer fram árleg endurskoðun á vottuninni. Deildi glærum með fundarmönnum. Fram kom að stöðufundur verði á morgun fimmtudag. Niðurstaða launagreiningu sýndi mismun upp á 4,7% konum í vil og er fylgnin 96%. Jafnlaunamarkmið var að frávik á óútskýrðum launamun væri ekki meira 5% svo markmiðinu var náð. Frávikið árið 2020 var 10,3% konum í hag.
Lagði fram tillögu um að óútskýrður kyndbundinn launmunur verði 0% og frávik ekki meiri en 5% og fylgni milli starfaflokkunar og launa (R2) verði hærra en 94%.
Framkvæmdastjórn samþykkir ofangreinda tillögu.
- Mannauðsmál
Rætt um mannauðsmál.
- Málefni hjúkrunarfræðinga í Ólafsvík.
- Þróunarmiðstöð heilsugsæslunnar – Skólahjúkrun.
ÞBH fjallaði um mögulegan stöðu verkefnistjóra vegna tengsla skólahjúkrunar við þróunarmistöð heilsugæslunnar og starfsmanna í skólahjúkrun fyrir alla staði. Fram kom hjá ÞBH og RM um að slík staða gæti verið skilgreind 5 til 10% staða.
Samþykkt að setja upp slíka stöðu til reynslu fyrir næsta skólaár.
RM ræddi áhyggjur sínar vegna vandamála við afleysinga nú í sumar. Bæði vegna hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
- Auglýsingar um stöður heilsugæslulækna.
Búið er að auglýsa eftir heilsugæslulæknum í Borgarnesi, Ólafsvík og Grundarfirði. Auglýsingarnar birtast á Starfatorgi og vefsvæðum heilsugæslulæknum. Rætt um að auglýsa sameiginlega þessar stöður í Læknablaðinu. Þá kom fram hjá ÞB að hann hafi rætt við heilsugæslu höfuðborgarsvæðins um mögulega aðkomu að t.d. Snæfellsnessvæðinu.
Sagði að vel hafi gengið að manna í stöður aðstoðarlæknar, búið er að manna fram á mitt ár 2022.
- Frá nefndasviði Alþingis – 645. mál til umsagnar – tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030- lagt fram
Lagður fram tölvupóstur frá Velferðarnefnd Alþingis dags. 7. apríl 2021 þar sem óskað er eftir umsögn varðandi þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030, 645. mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:38
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.