Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 14. ágúst 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.   Vilborg Lárusdóttur kom til fundar kl. 9:30.

 

Dagsskrá

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 12. júní 2019 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Samantekt frá málefnum sumarsins – yfirlit mála, funda og fyrirspurna.

Fjallað um helstu málefni sumarsins.

 

  1. Ársskýrsla og ársreikningur.

Ársskýrsla HVE fyrir árið 2018 og endanlegur ársreikningur ársins 2018 útgefinn af FJS lagður fram.

 

  1. Skipurit lagt fram til samþykktar.

Lagt fram nýtt skipurit HVE.  Skipuritið er samþykkt.

 

  1. Framsal valds.

Rætt um framsal valds frá forstjóra til framkvæmdastjóra.

 

  1. Kynning á heilbrigðisáætlun 15. ágúst. Undirbúningur

Fjallað um kynningu á heilbrigðisáætlun sem verður á HVE fimmtudaginn 15. ágúst kl. 17:00 og JFJ kynnti erindi sitt sem hún verður með á fundinum.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi.

Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

Heilbrigðisstefnan verður kynnt í öllum heilbrigðisumdæmum landsins.

  1. Starfsáætlun – staðan

Fjallað um starfsáætlun 2019 til 202.

 

  1. Stjórnendastefna ríkisins.

Kynnt stjórnendastefna ríkisins.

Fjallað var um að halda tveggja daga samstarfs- og fræðslufund með öllum stjórnendum.   Skoðað veður hvort mögulegt sé að halda slíkan fund í lok nóvember. Fram kom að áætlaður fjöldi sé rúmlega 40 talsins.  Endanleg ákvörðun verður tekin á næsta fundi.

 

  1. Bréf frá heilbrigðisráðuneytinu um fjarheilbrigðisþjónustu.

Lagt fram bréf frá heilbrigðisráðuneytinu um fjarheilbrigðisþjónustu dags. 26. júní 2019. En þar óskar ráðuneytið eftir að HVE skipi verkefnisstjóra um fjarheilbrigðisþjónustu.

Samþykkt að fela ÞB, ÞBH og RM að skoða málið og koma með tillögu að starfsmanni á næsta fundi.

 

  1. Jafnlaunavottun, staðan.

Vilborg fjallaði um stöðu mála jafnlaunavottunar.  Hafið er samstarf Margréti Sanders hjá Stragetiu um málefnið, þannig hefur verið horfið frá starfsmatskerfi LSH og farið yfir í sama kerfi og aðrar heilbrigðisstofnanir á landinu.

Stefnt er því að vottunin muni liggja fyrir tímalega fyrir áramót.

 

  1. Heilsugæsla á Snæfellsnesi – næstu skref.

Lögð fram samantekt starfshóps.

 

  1. Framkvæmdir- fundir og ferðir vegna þess.
  2. Framkvæmdir í Stykkishólmi.

Nú liggur skipulag húsnæðis nokkurn vegin fyrir. 

  1. Framkvæmdir á Akranesi, ofnaskipti, klæðning og gluggaskipti.

Fram kom að framkvæmdir hafi gengið ágætlega fyrir sig og eru að klárast á læknagangi og á B-deild.  Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist um miðjan september á A-deild ef tekst að færa til sjúklinga.

  1. Húsnæði á heilsugæslu Akranesi.

Unnið er áfram að skipulagsmálum.

  1. Sjúkrabílaskýlið á Akranesi.

Boðin hefur verið út bygging á sjúkrabílaskýli á Akranesi ásamt endurnýjun á lóð í porti.  Gert er ráð fyrir verklokum þann 15. júlí 2020.

                       

  1. Fundur með heilbrigðisráðuneyti 19. júní um liðskiptaaðgerðir.

Rætt um fund með fulltrúum frá heilbrigðisráðuneyti um mögulega fjölgun á liðskiptaaðgerðum það sem eftir lifir árs og jafnframt til lengri tíma.  Málið verður skoðað frekar.

 

  1. Fræðslu „app“ fyrir liðskiptaaðgerðir, verkefni með Landspítala og SAk.

Fram kom að unnið verði að fræðsluappi fyrir liðskiptaaðgerðir í samstarfi með Landsspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

 

  1. Röntgentæki: Útboðsferli fyrir tæki á Akranes og kaup á tæki í Stykkishólm.

Nýtt tæki er komið upp í Stykkishólmi.  Þá liggur það fyrir að Ríkiskaup hafi metið þá þrjá aðila sem buðu í tæki vegna Akranes sem hæfa, næsta skref liggur því fyrir þar sem tækin verða skoðuð og metin.

 

  1. Beiðnir um tækjakaup.

Lagðar fram tvær beiðnir um tækjakaup, annars vegar um kaup á gæslutækjum á skurðdeild að verðmæti 1,7 millj. króna og hins vegar um kaup á ProProbaq og hjólastól fyrir slysadeild samtals að fjárhæð 560 þús. króna.

Fram kom að eins og staðan er nú, þá er búið að ráðstafa þeim fjármunum sem áætlaðir voru á árinu og því ekki rúm fyrir frekari kaup að sinni.

 

  1. Aðstaða á HVE fyrir heilbrigðisstarfsmenn í sjálfstæðum rekstri.

Rætt um aðstöðu á HVE fyrir heilbrigðisstarfsmenn í sjálfstæðum rekstri.  Til tals kom hvort viðmiðið gæti mögulega verið þannig að ef þjónustan er ekki veitt á hverjum stað á vegum stofnunar mætti skoða að bjóða upp á aðstöðu gegn gjaldi.   Samþykkt að fela ÁÁ að skoða málið.

 

  1. Samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabíla.

ÞB fjallaði um samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og RKÍ um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabíla.  Fram kom að nú þegar hafi verið boðið út kaup á 25 nýjum bílum.

 

  1. Beiðni um breytingu á heiti heilbrigðisupplýsingadeildar á HVE Akranesi í heilbrigðisgagnadeild.

Samþykkt að heiti heilbrigðsupplýsingadeildar breytist í heilbrigðisgagnadeild.

 

  1. Mannauðsmál m.a:
  2. Stjórnendafræðsla á HVE
  3. Lyfjafræðingur Þrír sóttu um sóttu um stöðu lyfjafræðings hjá HVE. Fram kom að Þór Oddsson hefur verið ráðinn í stöðunna.
  4. Geðlæknir Viðræður eru við geðlækni í 25% stöðu.
  5. Sálfræðingur María Guðmundsóttir sálfræðingur hefur hafið störf í Borgarnesi í 100% stöðu.
  6. Áfengis- og vímuefnaráðgjafi. Fimm hafa sótt um og tekin verða viðtöl við tvo.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:45

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.