Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 15. mars 2023 kl. 9:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Fjárveitingabréf HVE fyrir árið 2023
Lagt fram og fjallað um fjárveitingabréf stofnunarinnar fyrir árið 2023.
- Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar
Lagt fram og fjallað um fjármögnunarlíkan HVE vegna ársins 2023. dags. janúar 2023.
- Læknisþjónusta á heilsugæslu- og sjúkrasviði
Rætt um læknisþjónustu á heilsugæslu- og sjúkrasviði. ÞB fór yfir málið.
Í Borgarnesi er læknamönnun í ágætu lagi eftir að þar eru komnir inn tveir fastir læknar, ágætlega hefur gengið að fá viðbótar afleysingar. Samþykkt að auglýsa eftir yfirlækni hið fyrsta í Borgarnesi í samráði við stjórnendur þar.
Aðeins hefur tekist að manna eina viku í afleysingu í sumar í Búðardal, Í Grundarfirði liggur mönnun ekki alveg fyrir. Ólafsvík verður líklega í lagi og mönnun í Stykkishólmi liggur fyrir. Mönnun á Hvammstanga er með föstum læknum sem fyrr. Mönnun í Hólmavík liggur fyrir.
Á sjúkrasviði hefur gengið illa að fá þriðja svæfingalækninn. Skoða þarf hvort endurnýja þurfi auglýsingu. Unnið er að lausnum á handlækningadeild og lyflækningadeild.
Á kvennadeild kemur þriðji læknirinn til starfa í fulla stöðu þann 1. september. Þá kom fram hjá ÞB að illa hafi gengið að fá afleysingar í sumar, skv. upplýsingum ÞB eftir samtöl við yfirlækni. Stefnt er að fundi n.k. föstudag með stjórnendum kvennadeildar kl. 10.
Nýr hjartalæknir kemur í stað Sigfúsar þann 1. september í 40% stöð auk móttöku, hann mun þannig verða læknir á lyflækningadeildinni.
Þá munu verða breytingar hjá þvagfæralækni, en Helgi Karl mun minnka við sig 10% og nýr kemur inn í 10% stöðu á móti.
- Skipulag starfseminnar sumarið 2023
Rætt um skipulag starfseminnar nú í sumar, sérstaklega í ljósi afleysinga.
Sjúkrasviðið á Akranesi. Fram kom hjá ÞBH að vel gengi að ráða ófaglærða í eldhús og ræstingu, ágætlega gagnvart sjúkraliðum, góð aðsókn frá sjúkraliðanemum sem eru að klára starfsþjálfun. Illa hefur gengið að fá hjúkrunarfræðinga í afleysingar, alveg sama hvort heldur á A, B eða slysadeildina. ÞBH sagði mönnun hjúkrunarfræðinga á A-deild ekki góða nú og því síður nú í sumar, vill koma á framfæri miklum áhyggjum varðandi þá deild. Á skurðdeild er ágæt mönnun skurðhjúkrunarfræðinga en ekki gengið vel að manna á svæfingadeild með svæfingarhjúkrunarfræðingum. Ljósmæðramönnun í sumar er ákveðið áhyggjuefni.
Skoða þarf sérstaklega starfsemi og mönnun á A-B-C, slysadeild og skurð með tilliti til að lágmarka starfsemi á skurðdeild og biðja hjúkrunarfræðinga þar að taka vaktir á öllum deildum
Búið er að ganga frá afleysingum á rannsóknadeild, röntgendeild og afgreiðsludeild.
Heilsugæslusvið
Akranes, staðan er ágæt. Borgarnes, sumarafleysingar að mestu frágengnar þar. Búðardalur, ekkert fast í hendi. Grundarfjörður, búið að leysa afleysingu fyrir ritara og ræstingu í sumar. ÞBH hefur óskað eftir að Dagný og Viktoría ræði saman með að leysa saman úr sumarleyfum í Grundarfirði og Ólafsvík vegna hjúkrunarfræðings og sjúkraliða.
Hvammstangi, heilsugæslan er mönnuð í sumar. Stykkishólmur, frágengið.
Hjúkrunarsvið
Hólmavík, lítið komið af umsóknum.
Hvammstangi, vantar aðeins uppá hjúkrunarfræðinga mönnun.
Stykkishólmur, unnið er að skipulagi með breyttu vaktaplani hjúkrunarfræðinga, vantar sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga í sumar.
- Framhald vinnu eftir fund með Strategíu 8.mars sl.
Lögð fram samantekt frá vinnufundi með framkvæmdastjórn um framtíðarfyrirkomulag heilsugæsluþjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, dags. 8. mars 2023.
Umræða verður tekin á næsta fundi.
- Ný ytri vefur á island.is
JFJ kynnti stöðuna á nýjum vef HVE eins og hann er núna. Stefnt er að opnun 22. mars.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:15
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.