Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 17. mars 2021 kl. 9:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 3. mars 2021 lögð fram og samþykkt.
- Staða bólusetninga vegna Covid- 19.
ÞB ræddi um fundi með sóttvarnarlækni vegna notkunar á AstraZenca, segir að ekkert bendi til annars en að bólusetning hefjist að nýju á næstu dögum. Ekkert bendi til þess að aukaverkanir séu frekar frá þessu efni framar öðru.
Fram kom hjá ÞBH að 120 skammtar eru að koma frá Pfizer fyrir Vesturland.
- Staðan á undirbúningi framkvæmda á Akranesi og í Stykkishólmi.
Lagt fram minnisblað um undirbúning sumarsins vegna framkvæmda á Akranesi, birt á workplace síðar í dag.
Undirbúningur sumarins og framkvæmda á Akranesi
Eins og margir vita hefur lengi staðið yfir undibúningur að umfangsmiklum framkvæmdum á húsnæði og aðbúnaði á A og B-deild sem nú hillir loks í að verði að veruleika.
Gert er ráð fyrir að gengið verði frá samningi við verktaka nú í mars.
Frá maílokum til 1. desember er fyrirséð að það verði mikið rask á starfseminni. Mesta truflunin verður í júní og fram í fyrstu vikuna í júlí vegna ónæðis og hávaða af völdum múrbrots og niðurrifs á A- og B-deildinni. Á sama tíma verður einnig rask á starfseminni á 1. hæðinni fyrir neðan B-deildina þ.e. á slysadeild, myndgreiningu og móttökustofum lækna þar sem taka þarf niður allt kerfisloft á ganginum, rífa stokka með skolplögnum o.fl.
Í grófum dráttum verður þetta með eftirfarandi hætti:
- A-deild flytur í húsnæðið þar sem biðdeildin var og mun hafa 12 rúm. Áætlað er að húsnæði A-deildarinnar verði fullbúið í lok nóvember og 1. desember á deildin að flytja aftur á sinn stað.
- B- og C-deild verða saman með 10 rúm í húsnæði C-deildar. Þann 1. desember fær C-deildin sín rúm aftur til afnota og B-deild færist yfir á biðdeildina í tvo mánuði á meðan húsnæði deildarinnar verður fullklárað.
- Frá og með 10. júní, til og með 6. júlí verður gert hlé á starfsemi B-deildar.
- Frá og með 10. júní, til og með 6. júlí verður gert hlé á kvensjúkdómahluta C-deildar en opið verður fyrir þjónustu við barnshafandi og fæðandi konur, þó eingöngu þær sem búsettar eru í heilbrigðisumdæmi Vesturlands.
- Frá og með 10. júní, til og með 6. júlí verður bakvakt á skurðstofunni til að unnt verði að framkvæma
keisaraskurði en ekki opið fyrir skurðaðgerðir að öðru leyti nema upp komi neyðartilvik.
Ástæða þess að gripið er til þess að gera hlé á þeirri starfsemi sem nefnd var hér að ofan er sú að á meðan múrbrotið og niðurrif stendur yfir eigum við von á verulegum óþægindum vegna hávaða sem leiða mun á milli hæða og veggja þannig að erfitt er að bjóða sjúklingum og starfsmönnum upp á slíkt ónæði. Því mun þjónusta eins og valskurðaðgerðir, speglanir o.fl. verða skipulögð fyrir eða eftir tímabilið.
Það var ávallt okkar von að framkvæmdir sem mesta ónæðið fylgir yrðu á sumarleyfistímanum þegar starfsemin dregst saman og það virðist ætla að ganga eftir. Þessi breyting á þjónustu á tímabilinu 10. júní til 6. júlí mun draga úr þörf á sumarafleysingum á einhverjum einingum og verið er að skoða það.
Þegar nær dregur mun Halldór Hallgrímsson upplýsa betur um hvernig skipulagið verður innan og utandyra frá miðjum maí þegar undirbúningur framkvæmdanna hefst.
JFJ fór yfir stöðuna og helstu framkvæmdaþætti í Stykkishólmi, unnið er að útboði. Í áætlun er gert ráð fyrir að verkið verði boðið út þann 7. apríl. Lögð fram drög að verkáætlun frá FSR dags. 11. mars 2021.
- Ósk um tilnefningu í landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu.
Lagt fram bréf Heilbrigðisráðuneytisins frá 11. mars 2021 þar sem óskað er eftir tilnefningu í landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Gert er ráð fyrir að HVE tilnefni einn karl og eina konu í ráðið. Einungis verður skipaður einn aðili í landsráðið frá öllum heilbrigðisstofnunum landsins.
Ráðið er skipað með eftirfarandi hætti: Formaður skipaður án tilnefningar, einn fulltrúi tilnefndur af heilbrigðisstofnunum, einn fulltrúi tilnefndur af heilsugæslu, einn fulltrúi tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneytinu, einn fulltrúi tilnefndur af heilbrigðisvísindasviði háskólasamfélagsins, einn fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn fulltrúi tilnefndur af embætti landlæknis.
Samþykkt að tilefna Þuru B. Hreinsdóttir og Jóhannes Bergsveinsson.
- Tilnefning fulltrúa í stjórn StarfVest.
Óskað var eftir tilnefningu fulltrúa HVE í stjórn StarfVest.
Samþykkt að skipa Sigurður Þór Sigursteinsson iðjuþjálfa. Hann mun finna með sér varamann.
- Frá nefndasviði Alþingis – Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (beiting nauðungar), 563. mál.
Lagt fram erindi frá nefndarsviði Alþingis frá 12. mars 2021. Þar er óskað eftir umsögn um frumvarp um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga., nr. 74/1997, um beitingu nauðungar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.