Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 17. desember 2025 kl. 9:00.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 10. desember lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjármál, rekstur og framkvæmdir

Fjallað um fjármál og framkvæmdir.

ÁÁ fjallaði um rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til og með nóvember 2025, ásamt rekstrarspá fyrir árið.

Fram koma að sem fyrr væri umtalsverður halli af rekstri, enda væri ekki búið að bæta að fullu þá kjarasamninga sem gerðir voru á árinu.  Samkvæmt rekstraryfirliti nemur hallinn því nú um 620 milljónum króna, eða um 7,2% af tekjum. Þetta er lang versta afkoma sem stofnunin hefur átt í, enda vega launahækkanir vegna kjarasamninga um 525 milljónum króna af þessum halla.  Þá kom fram að ráðuneytið hafi reglulega verið upplýst um þessa stöðu og raunar eigi sama við um allar heilbrigðsstofnanir á landinu.

 

Fjallað var um væntanlegt útboð á E-húsi og slysadeildar.  Umræða var um flutning slysadeildar meðan á framkvæmdum stendur.  Farið yfir tímalínu framkvæmda.

 

  1. Kortlagning sérgreinaþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins

Lagður fram tölupóstur frá Láru Jónasdóttur, sérfræðings í heilbrigðisráðuneytinu, dags.  11. desember 2025.  Þar óskar hún eftir neðangreindum upplýsingum.

  1. Hvaða sérgreinalæknisþjónusta er í boði á ykkur stofnun og umdæmi?
  2. Hvaða sérgreinaþjónustu myndu þið vilja hafa, sem þið hafið ekki nú þegar?
  3. Með hvaða hætti er helst verið að nýta möguleika fjarheilbrigðisþjónustu á stofnuninni í tengslum við veitingu sérfræðiþjónustu?
  4. Er einhvers konar samstarf í gangi við aðrar heilbrigðisstofnanir um þjónustu sérfræðinga eða

sérfræðiteyma?

  1. Hvað telur þú að þurfi að gera til að bæta aðgengi að sérfræði- og sérgreinaþjónustu?
  2. Eru aðrar upplýsingar eða lausnir sem þú vilt koma á framfæri sem tengist viðfangsefninu?

Fram kemur að þetta sé viðvarandi verkefni í heilbrigðisþjónustu til að reyna að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu og að kalla eftir þessum upplýsingum sé fyrsta skerf.

SES mun vinna að samantekt vegna málsins.

 

  1. Skilvirk háls og bakþjálfun HVE og PTassistance

Lögð fram samantekt um skilvirka háls- og bakþjálfun í Stykkishólmi í samstarfi við PTassistance.

SES fjallaði um málið.

PTassistance rekur æfinga- og fræðsluvef sem styður sjúkraþjálfara í meðferð og eftirfylgni við skjólstæðinga. Verkefnið felst í þróun sérhæfðrar háls- og bakeiningar innan kerfis PT Assistance í samstarfi við Háls- og bakdeild HVE. Einingin mun innihalda sérsniðnar æfingaáætlanir, fræðsluefni og eftirfylgni fyrir fólk með háls- og bakvandamál.

Unnið verður áfram að verkefninu.

 

  1. Skjalastefna HVE

Lögð fram skjalastefna HVE og hún samþykkt.

 

  1. Gæðahandbók HVE

Garðar gæðastjóri og Ágústa upplýsinga-og skjalastjóri komu til fundar og fjölluðu um gæðahandbók HVE.

 

  1. Þjónustukönnun SÍ og Ríkisstofnana

Lögð fram þjónustukönnun Sjúkratrygginga og ríkisstofnana unnið af Félagsvísindastofnun.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:23

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.