Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. febrúar 2026 kl. 9:00.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson. Hulda Gestsdóttir er í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 4. febrúar lögð fram og samþykkt.
- Fjármál og rekstur
Fjallað um fjármál og rekstur. Fram kom að ekki hafi fengist fjárveitingar til að mæta þeim kjarasamningum sem gerðir voru á síðasta ári eftir að fjárlög þessa árs voru ákveðin. Rekstrarhalli nú er um 402 millj. króna eða 4,3%.
Hækkanir á kjarasamningum lækna og annarra stéttarfélaga umfram launabætur vega um 86% af áætluðum halla rekstri þessa árs.
Heilbrigðisráðuneytinu er kunnugt um þessa stöðu, beðið er eftir niðurstöðu frá ráðuneyti hvort forstjóri eigi að senda 35. greinar bréf um málefnið.
Þá var fjallað um fyrirspurn HBR um hvort við gætum mögulega bætt við liðskiptaaðgerðum.
Þá var umræða um fyrirhugaðar endurbætur á Slysadeild og E-deildar húsnæði, en þrátt fyrir að útboðsgögn liggi fyrir þá dregst aftur og aftur að verkið verði boðið út. Fram kom að nýjustu vendingar nú snúist um að heilbrigðisráðuneytið komi að málum. Þá var umræða um framtíð húsnæðismála heilsugæslustöðvarinnar.
- Innra úttektarkerfi
Lagt fram tilboð frá Spectra um uppsetningu á úttektarkerfi.
Tilboðið er samþykkt.
- Almyrkvi á sólu 2026
Rætt um almyrkva á sólu þann 12. ágúst 2026. Almyrkvinn liggur yfir Vestfirði, Vesturland. Snæfellsness, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Gert er ráð fyrir miklum fjölda ferðamanna á þessum svæðum á þessum tíma. Til dæmis gera áætlanir ráð fyrir um 5.000 manna útihátíð á Hellissandi. Til gamans má nefna að almyrkvi var síðast í Reykjavík þann 17. júní 1433 og verður næst eftir 219 ár, eða 26. maí árið 2245. Fundað verður með viðbragðsaðilum á svæðinu eftir ca. tvær vikur.
- Þema janúarmánaðar “Streita og álag”. Niðurstöður könnunar.
Lagðar fram niðurstöður um Streitu og álag. SÞS kom til fundar og fjallaði um málefnið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.