Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 9:00.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 11. mars 2026 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjármál og rekstur

Fjallað um fjármál og rekstur.

Fram kom að rekstrarhalli fyrstu tvo mánuði ársins nemur 107 m.kr. í heild sinni, eða 7% af rekstri, þar af má tengja um 99 m.kr. vegna kjarasamninga lækna og fleiri stéttarfélaga eru stórlega vanfjármagnaðir, eins og heilbrigðisráðuneyti hefur ítrekað verið kynnt.

Rætt ítarlega um málið.

Ársreikningur HVE 2025 var undirritaður þann 12. mars 2026.

 

  1. Þjónustutengd fjármögnun.

JFJ, SES og ÁÁ áttu fund í síðustu viku með sjúkratryggingum, heilbrigðisráðuneytinu og embætti landlæknis varðandi fyrirhugaðan samning um innleiðingu á DRG eða þjónustutengdri fjármögnun fyrir sjúkrasvið HVE á Akranesi.

Samþykkt að samstarfsnefnd HVE um innleiðingu DRG verði Ásgeir Ásgeirsson, Eva Rós Sveinsdóttir deildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar og Sigurður E Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga.

 

  1. Vöktun öryggismyndavéla á HVE

Fjallað um vöktun öryggismyndavéla á HVE.  En unnið er að útskiptingu búnaðar þess sem fyrir er ásamt því að vélum verður fjölgað lítillega.  Í fyrsta fasa mun stofnunin á Akranesi verða tekin fyrir og svo aðrir staðir í samræmi við þörf.

Ágústa Rósa Andrésdóttir, Halldór Ragnar Guðjónsson og Garðar Jónsson komu til fundar til að fjalla um málefnið.

GJ fór yfir gæðaskjöl varðandi reglur og notkun á myndavélakerfum.  Þá voru mögulegar merkingar ræddar og staðsetning þeirra.  Þá var rætt um aðrar upptökur, þ.e. að ekki sé heimilt að taka myndir eða myndskeið.

 

  1. Viðbragðsáætlanir heilbrigðisstofnana.

Lagt fram tölvupóstur Heilbrigðisráðuneytis, mál. HRN26030072 varðandi viðbragðsáætlanir stofnana.

 

Fram kom í erindinu að Alþingi samþykkti þingsályktun um stefnu í varnar- og öryggismálum þann 3. febrúar sl., markmið stefnunnar er að tryggja sjálfstæði, fullveldi, lýðræðislegt stjórnarfar, friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna og vernd stjórnkerfis og mikilvægra innviða samfélagsins gegn hernaðarlegri ógn.

Með vísun til ofangreindrar stefnu stjórnvalda og þeirri stöðu sem uppi er í heimsmálunum telur ráðuneytið mikilvægt að heilbrigðisstofnanir hugi að sínu viðbragði og uppfæri viðbragðsáætlanir til samræmis. Enn fremur að stofnanir hugi að sínu birgðahaldi, sérstaklega hvað varðar lyf og annan nauðsynlegan búnað.

 

Samþykkt að skoða þær viðbragðs- og rýmingaráætlanir okkar sem í gildi eru með tilliti til ofangreinds.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.  11:35.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.