Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. maí 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 4. maí 2022 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Sumarhátíð starfsmanna- staðan

Fjallað um sumarhátíð starfsmanna og maka sem haldinn verður þann 21. maí 2022.  Fram kom að um 280 manns hafi skráð sig.

 

  1. Rammaútboð á CT tæki á vegum Sak

Rætt um rammaútboð á CT tæki á vegum Sjúkrahússins á Akureyri.  Fram kom að HVE haf staðfest þátttöku að þessum rammasamningum, kostnaður að útboði fellur eingöngu á HVE ef nýtt tæki verður keypt.  Jafnframt kom fram að HVE verði aðili að rammasamingum um möguleg kaup á ómtækum í samráði við Landsspítala.

 

  1. Ársfundir heilbrigðisstofnana

Umræða var um ársfundi heilbrigðisstofnana.  JFJ ræddi um mögulegan ársfund HVE, en fram kom að flestar stofnanir haldi slíkan fund.

Málið verður skoðað. T.d. hvort slíkur fundur verði haldin í maí á næsta ári.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.