Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. ágúst 2021 kl. 09:30 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Vilborg Lárusdóttir.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 11.ágúst 2021 lögð fram og samþykkt.

 

  1. COVID staðan, bólusetningar og hraðpróf.

ÞB fór yfir stöðu COVID faraldursins.  Ákveðin fækkun sést innan svæðis HVE, en í dag eru 20 í einangrun. Heilmikið var bólusett í síðustu viku, stór dagur er í dag þar sem bólusetja á unglinga á Akranesi og í Borgarnesi.

Rætt var um hraðpróf sem verið er að skipuleggja um allt land í takt við breytta reglugerð um sýnatöku hjá Íslendingum sem koma erlendis frá en þeim er nú skylt að fara í sýnatöku innan við 48 klst. frá komu til landsins. Þetta gildir fyrir börn sem fædd til ársins 2015. Þetta verkefnið er ekki hafið þar sem einhver vandkvæði eru í sambandi við skráningu. Búið er að senda Panbio hraðprófið á starfssstöðvar HVE.

 

  1. Mannauðsmál

Farið var yfir mönnun, laus störf og stöður sem þarf er að auglýsa.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.15

JFJ ritaði fundargerð.