Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 19. janúar 2021 kl. 9:00

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 12. janúar 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. Covid, staðan innan HVE

ÞB fjallað um stöðuna, 205 eru nú í einangrun á Vesturlandi og 4 á Hvammstanga, eða 209 á svæði HVE.   Samtals eru 401 í sóttkví.  Þetta eru batnandi tölur frá undanförunum dögum.   Rætt um spár sem hafa komið fram hjá sóttvarnaryfirvöldum.  Segir stöðuna í Stykkishólmi vera að lagast.  Þá kom fram hjá ÞB að smit vegna ómíkron væru almennt væg og innlagnir mjög fátíðar.

Nú eru örvunarbólsetningar í gangi, boðaðir voru 1.550 hér á Akranesi, þar af 660 í örvun og ríflega 800 í fyrsta sinn.  Á Snæfellsnesi voru sendir 150 skammtar og bólusetningar voru um 200 í Borgarnesi í síðustu viku.  Áfram er unnið að bólusetningu barna.

  1. Fjárhagsleg málefni.

Rætt um fjárhagsleg málefni.  Samkvæmt bókhaldi nú er halli af rekstri 96,8 m.kr. en fram kom að í nú í lok ársins hafi komið aukafjárveitingar vegna halla ársins 2021 að fjárhæð kr. 145 m.kr.

Farið verður vel yfir áætlun þessa árs í ljósi þessarra hækkana, en vonir eru bundnar við að enn eigi eftir að bæta „betri vinnutíma í vaktavinnu“ þannig þurfi ekki að nálagst þetta ár með niðurskurði.

  1. Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða.

Tillagan lögð fram og rædd.

  1. Samningur um viðbótar diplómanámsleiðir á meistarastigi í skurð- og svæfingahjúkrun

Lagður fram samningur um viðbótar diplómanámsleiðir á meistarastigi í skurð- og svæfingahjúkrun milli HÍ og HVE.    ÞBH fór yfir efni samningsins.

Hjúkrunarfræðideild hefur umsjón með og ber ábyrgð á náminu og verður námið vistað hjá Háskóla Íslands. Námið er í heild 80 ECTS og samanstendur af 50 fræðilegum ECTS og 30 klínískum ECTS. Samstarf verður samkvæmt samningi þessum við HVE á Akranesi um klíníska starfsþjálfun á námstímanum.

Fram kom hjá henni að HVE skuldbindi sig til að taka við nema án tillits hvaðan þeir koma.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi mun samkvæmt samningi þessum fjármagna:

  1. Að lágmarki eina sérnámsstöðu í skurð- og/eða svæfingahjúkrun í 80% starfshlutfalli yfir tveggja ára tímabil. Stefnt er að inntöku í viðbótarnám í skurð- og svæfingahjúkrun annað hvert ár.
  2. Faghandleiðslu (mentorship) fyrir að lágmarki einn hjúkrunarfræðing í sérnámsstöðu í gegnum tveggja ára námstímann.

Rætt um nauð um nauðsyn þess að HVE verði tryggt fjármang til að mæta þessum kostnaði.

Samningurinn er samþykktur.

  1. Mannauðsmál.
    1. Umfjöllun, reglur og leiðbeiningar varðandi Covid-19 og starfsfólk ríkisins (KMR/FJR)

Lagt fram yfirlit yfir skráningu og viðmið vegna covid, bæði veikindi og sóttkví.

  1. Hættir starfsmenn

Rætt um starfsmanna sem látið hafa af störfum vegna aldurs.

Samþykkt að framkvæmdastjórn sendi starfsmönnum kveðju og þakklætisvott framvegis næstu daga eftir að viðkomandi hættir.

  1. Starfsmannamál á Snæfellsnesi

ÞBH sagði frá því að unnið væri að sameiningu hjúkrunar á Grundarfiði og Ólafsvík þessa dagana, búið er að ráða hjúkrunarfræðing í 40% stöðu vegna skólahjúkrunar.  Annað skipulag er í mótun.

  1. Læknamál í Borgarnesi.

Rætt um læknamál í Borgarnesi, ekki hefur tekist að ráða yfirlækni á stöðina. Rætt almennt um málið.   Fram kom í umræðu að tilkynna þarf starfsmönnum þar að RM sé yfirmaður í Borgarnesi.

  1. Kynningarmyndband um HVE.

VL og ÞBH sögðu frá upptöku á kynningarmyndbandi um stofnuna í gær.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:50

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.