Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 19. ágúst 2020 kl. 9:15 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Júlíana Einarsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 12. ágúst lögð fram og samþykkt.
- COVID-19 – staðan og framkvæmd landamæraskimunar.
Rætt um Covid-19, stöðuna í dag, skipulag og framkvæmd landamæraskimunar. Fram hefur komið að nýtt fyrirkomulag um landamæraskimanir séu komið til að vera næstu mánuðina, þ.e. allir ferðamenn eru skimaðir við komu og skikkaðir í sóttkví í 5 daga og fara þá í aðra sýnatöku.
Umræða var um okkar föstu starfsmenn sem fara utan, þeir geta komið til starfa núna eftir 5 daga, það er áréttað að starfsmenn fái ekki laun í þessum sóttkvíartíma. Umræða var um mögulega afleysara sem búa erlendis. Það er svo til vinnusóttkví, þannig getur starfsmaður farið til og frá vinnustaðar á þessu tíma með sérstakri undanþágu sóttvarnarlæknis. Fundarmenn sammála um að þetta muni ekki eiga við hér.
Framkvæmadastjórn samþykkir að engir starfsmenn komi til starfa hér á HVE fyrr en eftir að seinni sýnataka reynist neikvæð, þ.e. eftir 5 daga sóttkví og tvöfalda neikvæða sýnatöku.
RM ræddi um fyrirkomulag og gengi við síðari landamæraskimun í Borgarnesi og Stykkishólmi. Fram kom að umtalsvert álag væri af þessari vinnu sem tekur umtalsverðan tíma af almennri heilbrigðisþjónstu, sem er mjög slæmt til lengri tíma. Fram kom almennt telji fundarmenn að þessi sýnataka ætti að fara fram á sérstökum stöðum og út af heilsugæslustöðvum.
Framvæmdastjórn mun leggja til að þessi skimun verði lögð af í Stykkishólmi og hún verði einungis í Borgarnesi og þangað verði fenginn auka starfskraftur til að koma að skimuninni. Nefnt var að þegar landshlutar væru skoðaðir, þá væri það einstakt hve þétt skimanir væru skipulagðar hér á Vesturlandi.
JFJ mun hafa samband við sóttvarnaraðila vegna málsins. Stefnt skal að því að taka þetta út úr húsi og fólk geti bókað sig sjálft í tíma eða sleppi við að bóka tíma fyrirfram. RM sagði að hægt væri að ráða við um 50 próf á klukkustund plús undirbúning og frágang.
- Framkvæmdir á HVE.
Fjallað um framkvæmir á HVE. Fram kom að Ríkiseignir og Framkvæmdasýslan hafa ákveðið að hafna öllum tilboðum sem bárust í endurbætur á norðurhlið A- og B-deildar þar sem öll tilboð voru umtalsvert yfir kostnaðaráætlun. Fundur verður með stjórnendurm þessara deilda næsta miðvikudag.
Helstu framkvæmdir þar fyrir utan er að skipa á um þakklæðingu á heilsugæsluálmu á Akranesi og skipt verður um þak á heilsugæslunni í Ólafsvík.
- Betri vinnutími – stytting vinnuviku – undirbúningur fyrir dagvinnufólk.
Rætt um styttingu vinnuvikunnar, en hafinn er undirbúningur fyrir dagvinnufólkið. Fram kom að í það heila skiptast 427 starfsmenn HVE í 26 stéttarfélög. Þar af eru 8 stéttarfélög sem hafa 1 starfsmann hvert.
Fram kom að Læknafélag Íslands hefur ekki samið um styttingu vinnuvikunna.
Fyrst á að vinna að samkomulagi við dagvinnufólk sem taka skal gildi í síðasta lagi 1. janúar 2021. Niðurstaða á að liggja fyrir þann 1. október.
Gert er ráð fyrir að vinna fyrir vaktavinnufólk verði síðar og unnið að mestu leiti fyrir allar stofnanir í heild.
Farið var yfir þætti innleiðingarferlis. Bent á heimasíðuna www.betrivinnutimi.is
Rætt um þann fjölda sem þarf að vera í innleiðingarhóp, skipaður verður einn hópur núna fyrir allt dagvinnufólk, vinnutímanefnd. Stefnt er að því að fjórir séu frá stofnun og fjórir frá séttarfélögunum. Samþykkt að frá stofnun verði það mannauðsstjóri, launafulltrúi og framkvæmdastjórar fjármála og hjúkrunar.
JFJ mun setja inn upplýsingar um málefnið. Stefnt er að fyrsti fundur hópsins verði næsta miðvikudag.
- Lög um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 (þjónustustig, fagráð o.fl.)
Lögð fram lög um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. JFJ fjallaði um lögin og lagði fram yfirlit yfir helstu breytingar.
- Mannauðsmál.
6.1 Hólmavík, yfirhjúkrunarfræðingur.
Fram kom að ekki hafi tekist að manna í stöðu yfirhjúkrunarfræðings, málið er í skoðun.
6.2 Hvammstangi, mönnun hjúkrunarfræðinga.
Erfiðlega hefur gengið að fá fasta hjúkrunarfræðinga til starfa.
6.3 Ólafsvík, mönnun hjúkrunarfræðings.
Yfirhjúkrunarfræðingur er að fara í minnkað starfshlutfall tímabundið en mun sinna mæðravernd.
Tekist hefur að ráða hjúkrunarfræðing í hennar stað, viðkomandi mun taka við hlutverki umsjónamanns staðar á meðan.
6.4 Læknamönnun.
ÞB fjallaði um læknamönnun á starfsstöðvum, ágætlega hefur gengið að fá lækna til starfa utan að ekki hefur tekist að tryggja mönnun að fullu í Grundarfirði. Von er á einum sérnámslækni á heilsugæsluna á Akranesi nú í september.
Sameiginleg kynning Landsspítala, Akureyri, heilsugæslunnar í Reykjavík og HVE verður nú í september. ÞB mun mæta þar að venju. Rætt almennt um mönnun lækna.
6.6 Ábending frá jafnréttisstofu.
JE sagði frá ábendingu jafnréttisstofu um að passa upp á að í auglýsingum komi ekki fram karl eða kona vegna meiri fjölbreyttni á þessum sviðum. Alls staðar á að taka út tengingar við „kyn“. Fór yfir fleiri atriði sem þarf að aðgæta.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:00
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.