Fundur framkvæmdastjórnar, miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 9:00, haldinn á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Linda sat fundinn um fjarfundarbúnað.
Dagskrá
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 13. febrúar 2019 lögð fram og samþykkt.
- Sérfræðiþjónusta á starfssvæði HVE.
Fjallað um sérfræðiþjónustu á starfssvæði HVE og helstu áhersluatriði.
- Skipan í öldungaráð Akraneskaupstaðar.
Lagt fram bréf Akraneskaupstaðar frá 8. febrúar 2019 um skipun fulltrúa frá HVE í öldungarráð Akraneskaupstaðar 2019 til 2022. Gera má ráð fyrir að erindi komi frá öðrum sveitarfélögum innan HVE. Framvegis mun JFJ senda slík erindi beint á heilsugæslunnar á hverjum stað fyrir sig sem munu skipa fulltrúa.
- Endurskoðun starfsáætlunar og skipurits HVE.
Rætt um starfsáætlun og skipurit HVE. En síðasta starfsáætlun var fyrir árin 2016 til 2018.
Samþykkt að fundað verði með fulltrúum starfsstöðva um endurskoðun á áætluninni.
Þá var fjallað um breytingar skipuriti sem hefur verið í gildi frá árinu 2011. JFJ mun vinna að endurgerð skipuritsins fyrir næsta fund.
- Mannauðsmál.
- Heilsugæslan á Akranesi.
Rætt um læknamönnun á heilsugæslunni á Akranesi. Samþykkt að auglýsa hið fyrsta eftir heilsugæslulækni.
- Læknisþjónusta háls- og bakdeildar Stykkishólmi.
Rætt um læknisþjónustu háls- og bakdeildar, en yfirlæknir hefur sagt upp stöðu sinn frá mars að telja.
- Sumarleyfi og þjónusta.
Rætt um skipulag og starfsemi í sumar. Þá var umræða um rekstur biðdeildar á Akranesi.
- Skólahjúkrun í Ólafsvík.
Rætt um skólahjúkrun í Ólafsvík.
- Heilsugæslustöðvarnar á Snæfellsnesi.
RM fjallaði fundi þeirra LK um samstarf heilsugæslunnar á Snæfellsnesi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.