Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 20. janúar 2021 kl. 9:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Júlína Einarsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 6. janúar lögð fram og samþykkt.
- Fjármál og rekstur – endurskoðun rekstrararáætlunar ársins 2021
Fjallað um fjármál og rekstur og endurskoðun rekstraráætlunar ársins 2021. Fram kom að hækkanir á fjárlögum ársins 2021 næmu nú samtals 49,8 m.kr. frá fyrri umræðu, jafnframt er loforð um 18 m.kr. hækkun vegna gerðadóms hjúkrunarfræðinga, samtals nemur þessi hækkun því um 67,8 m.kr. Að sama skapi hafa verðið gerðar leiðréttingar vegna afturvirkra kjarasamninga á fjárlögum síðasta árs um sem nemur 115,8 m.kr. Rekstarniðurstaða síðasta árs verður því betri en því sem því nemur. Heildar hækkun á milli ára nemur nú aðeins 1,2% eftir hækkanir á fjárlögum.
Rætt var um stöðu mála.
- Covid: Staðan og bólusetningar
ÞB sagði ástandið ágætt á landinum í heild, nú væru 122 í einangrun 227 í sóttkví. 3 aðilar eru skráðir í einangrun á Vesturlandi.
Bólusett verður 21. og 22. janúar. Fram kom að hægt væri að taka út 6 skammtinn úr sýnaglösunum, þetta gefur nú 117 aukaskammta. Allir skammtar verða notaðir núna. Hverjum og einum stað verður gert að stjórna hverjir fá bólusetningu í samræmi við forgangslista. Samtals eru þetta því um 702 sem fengið hafa fyrri skammtinn eftir þetta, þar af eru 310 sem eru að fá síðari skammt, nú eru það því 392 að fá fyrri skammtinn.
- Innsent erindi um netsjúkraþjálfun í Ólafsvík
JFJ fjallað um erindi frá fyrirtæki sem sinnir netsjúkraþjálfun víða um land. Þar er óskað eftir því að fá aðstöðu í Ólafsvík fyrir þessa þjónustu, en sjúkraþjálfari kemur alltaf í fyrsta viðtal og skoðun sjúklinga á staðina og svo fyrir einhverja eftirfylgni. Þetta hefur verið gert í Búðardal og Hólmavík.
Fundarmenn sammála um að ganga til samninga við þessa aðila.
- Öryggismál
- Öryggisnefnd HVE – endurskipan nefndar
JFJ fór yfir skipun starfsmanna í öryggisnefnd.
Nefndin er skipuð sex aðilum. Starfsmenn kjósa úr sínum hópi þrjá fulltrúa, öryggistrúnaðarmenn og forstjóri HVE tilnefnir þrjá fulltrúa, öryggisverði.
Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í nefndina:
Öryggisvörður Akranesi, Skarphéðinn Magnússon, sjúkraflutningamaður
Öryggisvörður Hólmavík og Búðardal, Jóhann Björn Arngrímsson, svæðisfulltrúi, formaður nefndarinnar
Öryggisvörður Hvammstanga, Hörður Gylfason, umsjónarmaður fasteigna
Öryggistrúnaðarmaður Akranesi, Þóra Björg Elídóttir, hjúkrunarfræðingur
Öryggistrúnaðarmaður – óskipað sæti
Öryggistrúnaðarmaður Stykkishólmi, Hrefna Frímannsdóttir, yfirsjúkraþjálfari
- Viðbrögð við ógn og hættu – endurskoðun verklagsreglna
Rætt um viðbrögð við ógn og hættu. Fjallað um málið.
- Vinna við endurskoðun rýmingaráætlunar á HVE Akranesi
- Mannauðsmál
Styrkur til félagslegra þátta í þágu starfsmanna HVE, verklagsregla
Rætt um verklagsreglur um styrk til félagslegra þátta. JE lagð fram uppfærðar verklagsreglur til skoðunar. Þannig miðast styrkur til starfsmanna við kr. 600,- pr. starfsmann á mánuði. Þá geta starfsmenn fengið kr. 8.000,- hvert ár vegna íþróttaiðkunar.
Verklagsreglunar samþykktar.
- Ný lög um vernd uppljóstrara – leiðbeiningar og verklag
Rætt um ný lög um vernd uppljóstrara, leiðbeiningar og verklega. Þar kemur fram að opinberir starfsmenn hafi ríkar skyldur til að upplýsa möguleg brot. Sækja má fyrirmynd að reglum um verklag við uppljóstrunn á vef vinnueftirlitsins. https://www.vinnueftirlit.is/log-reglur-og-stadlar/reglur-um-verklag-vid-uppljostrun-starfsmanna/fyrirmynd-ad-reglum-um-verklag-vid-uppljostrun/
Málið verði skoða og tekið fyrir á næsta fundi.
- Stytting vinnutíma/betri vinnutími – staðan
Rætt um styttingu vinnutíma, sérstaklega hvað varðar innleiðingu vegna vaktavinnufólks.
- Húsnæðismál lækna í Borgarnesi, erindi frá Lindu Kristjánsdóttur
Rætt um erindi Lindu Kristjánsdóttur yfirlæknis í Borgarnesi vegna húsnæðismála lækna í Borgarnesi.
- Innsent erindi frá Ljósinu. Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Fjallað um erindi frá Ljósinu um þjónustu við krabbameinsgreinda og aðstandenda þeirra á landsbyggðinni. https://mailchi.mp/ljosid/erindi-til-fagadila?e=4bc5e22b5b
Málefnið verður kynnt fyrir stjórnendum.
- Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar – staða skráningar
Rætt um fjármögnunarlíkan heilsugæsluna og skráningar í sögu. Umræða var um hvort nauðsynlegt sé að hafa fund með læknum og hjúkrunarfræðingum um málefnið.
Fundarmenn sammála um að gott væri að hafa reglulega stutta slíka fundi.
ÞB, RM og ÞBH falið að hafa fund fljótlega.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:00
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.