Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 21. janúar 2026 kl. 9:00.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Sigurður E. Sigurðsson er forfallaður.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 7. janúar 2026 lögð fram og samþykkt.
- Fjárlög 2026
Rætt um fjárlög ársins 2026.
Lagt fram og farið yfir erindi JFJ til heilbrigðisráðuneytis vegna rekstrarhalla ársins 2025.
Þar kom fram að rekstur hafi verið mjög þungur og útkomuspá gerir ráð fyrir um 590 m.kr. halla og hefur hann aldrei verið jafn mikill. Rekstrarhallinn skýrist að mestu af miklum launahækkunum sem ekki hafa fengist launabætur fyrir nema að hluta. Hækkanir vegna nýrra kjarasamninga lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og sjúkraflutningamanna voru 727 m.kr. ár árinu eða 471 m.kr. umfram launabætur ársins. Þannig er um 80% af rekstrarhallanum tilkominn vegna þessara kjarasamninga, til að mynda eiga nýir kjarasamningar lækna um 357 m.kr. af þessum halla, eða um 61% af halla.
Þá voru 10 aðrir kostnaðarliðir tilgreindir sem orsök hallans til viðbótar við nýja kjarasamninga sem gerðir voru eftir á fjárlög síðasta árs lágu fyrir.
Fjallað var um helstu frávik og kröfur um niðurskurð á þessu ári.
- Nefnd um stafræna skráningu og upplýsingaöryggi.
Umræða var um nefnd um starfræna skráningu og upplýsingaöryggi sem skipuð var af framkvæmdastjórn þann 15. nóvember 2023.
Samþykkt að þessi nefnd verði lögð niður, enda hefur komið í ljós að nefndin hafi aldrei haldið formlegan fund frá skipun. Verkefnin verða skoðuð og skipaður verður vinnuhópur um skráningu á heilsugæslusviði.
Hlutverk hópsins verður að:
- Innleiða og fylgja eftir nýjungum í skráningu.
- Samræma skráningu heilbrigðisstarfsmanna á HVE.
- Stuðla að gæðum skráningar í sjúkraskrár.
- Setja verklagsreglur og verklýsingar um skráningu.
- Hvetja til vandaðra vinnubragða við skráningu í samræmi við lög og reglur.
JFJ og HG munu klára málið.
- Félagsráðgjafi á HVE, framhald umræðu að lokinni greiningarvinnu.
Rætt um stöðu félagsráðgjafa hjá HVE, en fram kom að nánast allar heilbrigðisstofnanir á landinu væru með einn eða fleiri félagsráðgjafa við störf.
Unnið verður að því að leita allra leiða til að fá inn félagsráðgjafa, meðal annars með skoðun á tilfærslu verkefna og/eða starfshlutföllum starfsmanna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:23
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.