Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 21. ágúst 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 14. ágúst lögð fram og samþykkt.

  1. Fjárhagsleg málefni.

Lagt fram og rætt um rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til júlí 2019.  Neikvæð rekstrarafkoma nemur nú 18,8 m.kr. eða 0,6% af tekjum.  Það sem þó veldur mestum áhyggjum er að launakostnaður er komin ríflega 6% fram úr áætlun þetta tímabil, eða 112 m.kr.  Af þessari fjárhæð er þó um 55 m.kr. eingreiðsla sem ákveðin var að ríkissjóði þetta árið sem ekki var gert ráð fyrir, hins vegar hefur yfirvinna aukist umfram áætlun og þar þarf að spyrna við fótum.

Fram kom að nauðsynlegt er að grípa til aðgerða til að draga verulega úr kostnaði vegna yfirvinnu og útköllum það sem eftir lifir árs, sérstaklega á legu- og stoðdeildum sem eiga stærstan þátt í kostnaði umfram áætlun.  Þá verður dregið úr öllum vöru- og þjónustukaupum eins og kostur er.

  1. Framkvæmdir á lyflækningadeild í september, ofnaskipti.

Rætt um framkvæmdir á lyflækningadeild nú í september. Áætlun gerir ráð fyrir að farið verði í ofnaskipti tímabilið 9. september til 10. október. Gert er ráð fyrir að lyflækningadeild fái afnot af plássum á öðrum legudeildum eins og þörf er.

  1. Skipan verkefnisstjóra um fjarheilbrigðisþjónustu.

Fjallað var um skipan verkefnisstjóra um fjarheilbrigðisþjónustu.   Ákvörðun liggur fyrir á næsta fundi.

  1. Fræðslu „app“ fyrir liðskiptaaðgerðir, breytt gjald fyrir þáttöku í verkefni.

Farið yfir innleiðingu og kostnað á fræðsluappi fyrir liðskiptaaðgerðir.  Samþykkt að taka þátt í verkefninu.

  1. Mannauðsmál m.a:
  2. Stjórnendafræðsla á HVE, framhald umræðu á síðasta fundi.

Fjallað um fræðslufund fyrir stjórnendur sem fyrirhugað er að halda dagana 27. og 28. nóvember n.k. í Borgarnesi.  Gert er ráð fyrir að þetta verði um 40 starfsmenn sem sæki fundinn.

 

  1. Mönnun á kvennadeild.

Rætt um mönnun ljósmæðra á kvennadeild, frekari umræðu fer fram á næsta fundi.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.  10:55

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.