Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 21. september 2022 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þórir Bergmundsson er í veikindafríi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 31. ágúst 2022 lögð fram og samþykkt.
- Fjárlagafrumvarp 2023
Lagt fram og rætt um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023. Frumvarp gerir ráð fyrir að fjárveitingar verði samtals 6.158 millj. króna á næsta ári, í raun nærri þeirri tölu sem rekstur nú í ár stendur í.
ÁÁ mun leggja fram rekstrarspá ársins 2022 á næsta fundi þar sem fjallað verður frekar um þessa stöðu.
- Staða sálfræðings og styrking geðheilsuteymis. “Covidfjármagn“ verður að varanlegu fjármagni.
Fram kom að styrking geðheilsuteymis í tengslum við Covid verður að varanlegu fjármagni til rekstrar, samtals 13,5 fyrir sálfræðing og 13,5 fyrir geðheilsuteymi, samtals 27 m.kr. á ári.
Rætt hvernig þessu fjármagni verði skipt til framtíðar. Fundað verður með forsvarsmönnum geðheilsuteymis og sálfræðiþjónustu um málefnið.
- Mönnun lækna í heilsugæslu.
Fjallað var um mönnun lækna á heilsugæslustöðvum okkar undanfarið og í framtíðinni. Fram kom að nú hafi fastur læknir hafið störf í Borgarnesi sem jafnframt hafi flutt í bæinn. Þá er von á öðrum föstum lækni í byrjun næsta árs. Auglýst hefur verið eftir föstum læknum á Snæfellsnesi. Mönnun lækna á heilsugæslum rædd.
- Bókun bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar, 13. september 2022
Lögð fram bókun bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar frá 13. september 2022. Rætt um málefnið.
Eftirfarandi er bókun bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar á fundi í gær, 13. september 2022:
Grundarfjarðarbær – Um þjónustu HVE í Grundarfirði
Bæjarstjórn lýsir enn yfir áhyggjum sínum af stöðu læknisþjónustu í Grundarfirði, þ.e. að ekki hefur tekist að manna stöðu læknis með fullnægjandi hætti í bænum. Bæjarstjórn óskar eftir samvinnu við heilbrigðisráðherra í því skyni að leita nýrra leiða við mönnun læknisþjónustu í bænum og óskar eftir aðkomu þingmanna að málinu. Bæjarstjórn hvetur jafnframt HVE til að sinna viðeigandi upplýsingagjöf á vef sínum þegar um læknaskort er að ræða.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og eiga samskipti við ráðherra og þingmenn um viðeigandi lausnir.
Samþykkt samhljóða.
- Mælaborð með gæðavísum í þjónustu heilsugæslustöðva og hjúkrunarheimila
Rætt var um mælaborð með gæðavísum í þjónustu heilsugæslustöðva og hjúkrunarheimila.
- eMED – staðan
ÞBH fjallaði um innleiðingu á eMED, fram kom að á síðustu dögum hafi innleiðing hafist á Akranesi, stefnt er að innleiðingu á öðrum stöðum á næstunni.
- Skipan í starfshóp um stefnumótun í öldrunarmálum hjá Akraneskaupstað
Sigurður Þór Sigursteinsson iðjuþjálfi hefur verið skipaður í starfshópinn.
- Skipulag vetrarins
Rætt um skipulag vetrarins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:11
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.