Fundur haldinn með framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 21. desember 2022 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:    Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Smþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 14. desember 2022 lögð fram og samþykkt.

  1. Mönnun heilsugæslunnar í Grundarfirði og Ólafsvík frá áramótum.

Rætt um mönnun heilsugæslustöðvanna í Grundarfirði og Ólafsvík frá áramótum.

Viðræður eru komnar áfram við þá tvo lækna sem starfað hafa í Grundarfirði undanfarið ár og hafa þeir þegar staðfest að þeir muni starfa á næsta ári, beðið er eftir nánara skipulagi á skiptingu starfa þeirra eftir vikum.

Fram kom að að læknamönnun í Ólafsvík í haust og vetur hafi verið mjög brothætt, en samtals hafa fallið út sex vikur í mönnun lækna, þar af tvær í september, tvær í október og ein í nóvember og desember.   Nú hefur einungis verið tryggð mönnun í tvær vikur pr. mánuð út júní 2023.  Þá mun einnig koma til starfa viðbótar hjúkrunarfræðingur þetta sama tímabil.

Ítarlega var rætt um málið.

  1. Fyrirhuguð ráðgjöf vegna endurskoðunar á skipurit og skipulagi í heilsugæslu.

Rætt um fyrirhugaða ráðgjöf vegna endurskoðunar á skipuriti og skipulagi í heilsugæslu.

JFJ hefur átt viðræður við Strategíu um málið.   Lögð fram drög að verkefnislýsingu um málefnið, dags. 19. desember 2022.

Markmið verkefnisins er að móta framtíðarfyrirkomulag fyrir heilsugæsluþjónustu HVE. Horft verður til núverandi starfsemi heilsugæslunnar út frá landfræðilegum svæðum og skipulagi einstakra heilsugæslustöðva. Einnig verður horft til niðurstöðu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu.

Rætt um málefnið og samþykkt að fara í verkefnið.

  1. Kortlagning þjónustu – samantekt fyrir HRN.

Lögð fram samantekt fyrir Heilbrigðisráðuneytið um kortlagningu á þjónustu HVE.

  1. Mannauðsstefna HVE.

Lögð fram uppfærð mannauðsstefna HVE.

Mannauðsstefnan samþykkt með áorðnum breytingum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:10

Ásgeir Á. ritaði fundargerð