Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 22. mars 2023 kl. 9:00.

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 15. mars 2023 lögð fram og samþykkt.

  1. Rekstrarstaða janúar til febrúar 2023 og fundur með heilbrigðisráðuneyti.

Fram kom að JFJ og ÁÁ áttu fund með fulltrúum HRN s.l. mánudag um rekstarmálefni og starfsemi.

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til febrúar 2023.

Rætt um málið.  Fram kom að unnið væri að uppfærslu á áætlun í samræmi við auknar fjárveitingar á heilsugæslusviði vegna leiðréttingar á fjármögnunarlíkani sem tilkynnt hefur verið um og leiðréttingu á dreifingum fjárveitinga innan ársins.

  1. Samþætting öldrunarþjónustu í Dalabyggð – ÞBH

ÞBH fór yfir viðræður með starfshópi um samþættingu öldrunarþjónstu.

Rætt um málefnið.

Fram kom að sú fjárhæð sem HVE fær árlega vegna heimahjúkrunar er fyrir um 20% stöðu.

ÞBH mun skoða hvort hægt verði að fá fjármagn fyrir þessari samþættingu sem reynsluverkefni.

 

  1. Skólaheilsugæsla í framhaldsskólum. ÞBH og RM

RM sagði frá því að búið væri að ráða í 20% stöðu hjúkrunarfræðings til að sinna skólaheilsugæslu í framhaldsskólum í Borgarnesi og Snæfellsnesi.  Þannig verði þjónustan samþætt í öllum framhaldskólum á svæðinu, þ.e. á Akranesi, Borgarnesi og á Snæfellsnesi.  Heildarmönnun verður því um 32,5% í heildina, áður var skilgreind 12,5% staða á Akranesi.  Samtals nemur fjárhæðin 3,84 á ári fyrir þetta.

 

  1. Innleiðing samræmds verklags í heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldis – bréf frá HRN.

Lagt fram bréf frá heilbrigðisráðuneytinu, dags. 15. mars 2023, um innleiðingu samræmds verklags í heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Fram kom að sá hluti starfshópsins sem kom frá heilbirgiðsstofnunum, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Þróunarmiðstöðinni hefur hafið vinnu við innleiðingu verklagsins.  Í fyrsta lagi á að aðlaga verklag frá Landspítla að heilbrigðisstofnunum m.t.t. mönnunar og aðstöðu.  Í öðru lagi að úbúa leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsmenn sem munu taka þessi mál á stofnuninni og kynna á innri vef stofnunar og í þriðja lagi þarf að útbúa leiðbeiningar fyrir þolendur kynferðisofeldis um hvaða þjónusta er í boði á hvaða stofnun og kynna á ytri vef stofnunarinnar og á vef 112.is.

Rætt um málefnið.   Fram kom að fundarmenn telji að samræmt verklag innan HVE eigi að vera að senda eigi alla á Neyðarmóttöku sem er á bráðamóttökunni á Landspítalanum í Fossvogi.  Þar er alltaf opið og sú þjónusta er skilgreind fyrir alla, hvar sem viðkomandi býr.

 

  1. Framhald vinnu eftir fund með Strategíu 8. mars sl.

Lögð fram drög að skýrslu Strategíu um svæðisskipulag Heilsugæslu HVE, dags. 14.03.2023 og um framtíðarfyrirkomulag heilsugæsluþjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands frá vinnufundi með framkvæmdastjórn frá 8. mars 2023.  Þá var lögð fram og farið yfir aðgerðaráætlun.

Farið var yfir erindin, samþykkt að fara sérstaklega yfir aðgerðaráætlunina á næsta fundi.   Stefnt er að fundi með Strategíu þann 17. apríl.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:57

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.