Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 22. desember 2021 kl. 9:00
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 8. desember 2021 lögð fram og samþykkt.
- COVID, staða faraldursins
Fjallað um stöðu faraldursins. ÞB sagði faraldurinn í uppsveiflu vegna þessa nýja afbrigðis, en smittími er mun hraðari en á fyrri afbrigðum, jafnvel 2 til 3 dagar. Ekki liggur en fyrir hve veikindi verða mikil en þau virðast vera vægari þó fjöldinn sem veikist sé mikill.
Á Vesturlandi eru nú 45 í einangrun og 80 eru í sóttkví. Fyrir viku síðan voru 27 í einangrun og 60 í sóttkví. Minnti á að það hafi verið yfir 180 í einangrun eftir skemmtikvöldið á Gamla kaupfélaginu.
JFJ sagði frá beiðni Landspítalans um að aðrar stofnanir tækju við sjúklingum vegna „fráflæðisvanda“.
Umræða var um hvað gera mætti á heilsugæslunum ef allt fer á versta veg hvað varðar þjónustu.
JFJ sagði að skilaboð Ölmu landlæknis væri að tryggja áfram allar smitvarnir meðal starfsmanna t.d. með notkun á veirugrímum og hvetja þá til að fara í örvunarbólusetningu.
Rætt um hraðpróf og sýnatökur, opið verður fyrir sýnatökur á aðfangadag og gamlaársdag, lokað verður á jóladag og nýársdag. Þessi svokölluðu viðburðarhraðpróf eru orðin mjög íþyngjandi fyrir heilsugæslurnar.
- Rekstraráætlun 2022
Fjallað um rekstraráætlun fyrir árið 2022 og lögð fram greinargerð forstjóra með rekstraráætlun.
Fram kom að samkvæmt afkomuspá ársins 2021 er rekstrarstaðan neikvæð um sem nemur 194 m.kr. og að fjárlagafrumvarp geri ráð fyrir 4,2% hækkun m.v. endanlega fjárheimild ársins 2021. Þá gerir framlögð áætlun fyrir árið 2022 ráð fyrir um 225 m.kr. halla af rekstri miðað við sambærilega starfsemi og þjónustustig, nauðsynlegt verður því að fara í umfangsmikinn niðurskurð á næsta ári ef fjárlög taka engum breytingum.
- Afhending gjafa frá Hollvinasamtökum HVE 20.desember
Hollvinasamtök HVE afhentu þrjú sjúkrarúm þann 20. desember s.l. Í tilefni opnunar lyflækningadeildarinnar eftir gagnagerar breytingar var gengið með stjórn samtakanna um deildina. Samtals hafa Hollvinasamtökin afhent 28 sjúkrarúm frá árinu 2019.
Þá var tekið fram að Rebbekkustúkan Ásgerður færði heilsugæslunni á Akranesi PadSacan HD 5 blöðruskanna í desember 2020. Í janúar kom CMS Pagewriter TC30 hjartalínurit og í ágúst bættist síðan þriðja gjöfin við en það var kvenskoðunarbekkur ásamt skoðunarljósi.
- Opnun lyflækningadeildar eftir endurbætur
Lyflækningadeild opnaði að nýju þann 16. desember. Fram kom að einhver smáatriði væru eftir og unnið er að endurbótum.
Fram kom að Vinnueftirlitið hafi gert athugasemd við að ekki væri útsog úr lyfjaherberginu, krafa er um þetta verði lagað.
- Mannauðsmál
- Verklagsregla um viðbrögð við hvarfi á lyfjum
Lagðar voru fram verklagsreglur um viðbrögð við hvarfi á lyfjum, dags. 21. desember 2021. Markmiðið er að lýsa viðbrögðum við hvarfi á lyfjum og lyfjastuld á HVE með hagsmuni starfsmanna og stofnunar að leiðarljósi. Farið var yfir reglurnar.
- Kynningarmyndband
Vilborg sagði frá gerð kynningarmyndbands sem höfða eiga til umsækjenda. Keyrt verður á 3 búta, einn fyrir HVE almennt, þá er einn fyrir Akranes og svo sá þriðji sérsniðin að skurðdeildinni á Akranesi. Gert er ráð fyrir að þessir bútar verði tilbúnir um miðjan janúar.
- Læknamönnun í Borgarnesi.
Ekki hefur verið sótt um stöðu yfirlæknis í Borgarnesi, en umsóknarfrestur rennur út um áramótinn. En fram kom hjá ÞB að búið væri að tryggja 3 lækna við störf fram eftir næsta ári. Þá væri búið að skipuleggja mönnun um helgar.
- Deildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar.
Rætt um umsókn deildarstjóra heilbrigðisgagandeildar. Ein umsókn hefur borist.
- Samingur um augnlæknaþjónstu.
Fram kom að samningur hefur verið gerður við Sjúkratryggingar um augnlæknaþjónstu á Hvammstanga og á Hólmavík.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:25.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.