Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 23. janúar 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Farið yfir síðustu fundargerð og hún samþykkt.

  1. Tækjalisti HVE 2019.

Lagður fram tækjalisti fyrir árið 2019 til yfirferðar og staðfestingar. Skila þarf lista til ráðuneytis föstudaginn 25. janúar n.k. Sérstaklega var fjallað um myndgreiningarbúnað á heilsugæslum.

  1. Velferðarstefna Vesturlands – til umsagnar.

Lögð fram drög af Velferðarstefnu Vesturlands unnin af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi dags. 12.12.2018.  Skila þarf umsöng um stefnuna fyrir 15. febrúar 2019.

Meginverkefni hópsins var að vinna tillögu að heildstæðri velferðarstefnu fyrir Vesturland sem inniheldur framtíðarsýn, markmið og tillögu að aðgerðum til að nálgast þau markmið sem fram eru sett.

  1. Lyfjanefnd HVE – skipan nefndar.

Lögð fram drög af skipunarbréfi fyrir nefndarmenn í lyfjanefnd HVE.

Rætt um málefnið og verksvið. Fundarmenn sammála um að eftirtaldir aðilar séu áfram skipaðir í nefndina, þ.e. lyfjafræðingur, framkvæmdastjóri lækninga, hjúkrunardeildarsstjóri lyflækningadeildar og yfirlæknir lyflækningadeildar.

JFJ mun senda út nýtt skipunarbréf nefndarinnar.

Fram kom fram í umræðunni að talið er að skerpa þurfi á eftirfylgni og kynningu á lyfjalista.

  1. Samnorrænt verkefni – erindi frá SAk. Bréf Sigurðar Einars Sigurðssonar, framkvæmdstjóra lækninga á SAk.

Lagt fram erindi frá SAk um samnorrænt verkefni á vegum norrænu ráðherranefndarinar, en fram kom að heilbrigðisráðuneytið hafi farlið SAk að vera í forsvari verkefnisins hér á landi.  Í erindinu er óskað eftir upplýsingum svo kortleggja megi það sem nú er til staðar í fjarheilbrigðisþjónustu.

  1. Mannauðsmál.

Fjallað um langtímaveikindi starfsmanna og stöðu mála.

Farið yfir stöðu mála er snúa að mönnun heilsugæslulækna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.