Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 23. desember 2020 kl. 9:00 um teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinsósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá: 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 2. og 9. desember 2020 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjármál og rekstur.

Fjallað um fjármál og rekstur, sérstaklega fyrirhugaðan niðurskurð á næsta ár.

En eins og fram kom á síðasta fundi framkvæmdastjórnar hækkar raun fjárveiting um 2,5% á milli áranna 2020 og 2021og nú þegar laun hækka nú strax um áramót um tæp 4%, þá þarf að auki að gera ráð fyrir vægi hækkana á launum nú í ár á launum næsta árs. En laun hækkuðu um ca. 4,1% á í apríl 2020, samtals vegur því hækkun launa á árinu miðað við síðasta ár í það minnsta 7,9%. Þá voru samþykktir nýir kjarasamningar við lækna með gildistíma 2 ár aftur í tímann, sem setur þetta allt í uppnám að auki þetta ár og næsta ef ekki fylgja með fjárveitingar.

 

  1. Covid – staðan og undirbúningur bólusetninga.

Staðan á Vesturlandi er góð, en þar eru 3 í einangrun. Staðan á landsvísu er þó heldur verri.

Fjallað um stöðu mála varðandi bólusetningar.

ÞBH fór yfir skipulag bólusetningaráætlunar, en gert er ráð fyrir að bólusetningar hefjist 30. desember.   Eitt teymi fer á Snæfellsnesið og annað á norður svæðið.  Fram kom að bólusetningarefnið kæmi kælt en við þurfum að tryggja rafmagnskælibox til að geyma efnið í flutningum.

ÞBH og RM eru með fyrirliggjandi upplýsingar um alla aðila sem eru í forgangi núna fyrir bólusetningu, forskráning liggur fyrir í bólusetningarkerfið fyrir hjúkrunar- og dvalarheimilin.

Þá fær HVE 54 skammta til að gefa starfsmönnum, byggir á upplýsingum sem komið hafa fram frá yfirhjúkrunarfræðingum á hverjum staða fyrir sig, þ.e. þeir aðilar sem eru í sýnatökum. Í heild eru þetta 310 skammtar sem koma í 62 hettuglösum fyrir fyrstu bólusetningu.

Fram kom að farið verður eftir þeim reglum og viðmiðum sem í gildi eru um landið varðandi okkar heilbrigðisstarfsfólk í bólusetningu.

Rætt ítarlega um stöðuna og fram kom að endanleg áætlun liggi fyrir nú í dag.  Þá var umræða um fyrirkomulag flutninga efnisins um svæðið, mögulega mun sjúkrabifreið verða notuð fyrir norður svæðið.  Þá kom fram að flugvélin með bóluefnið mun lenda þann 28. desember n.k.

  1. Skimun fyrir leghálskrabbameini – staðan

Umræða um skimun fyrir leghálskrabbamein.  Bætt verður við 10% stöðu ljósmóður á Akranesi vegna þessa.  Fram kom hjá RM að búið væri að semja við rannsóknarstofu sem tekur verkið að sér.  Þá er von á nýjum sýnaglösum.  Unnið er að skipulagi á öllum starfstöðvum HVE.

 

  1. Starfslokakveðjur

Rætt um starfslokakveðjur til starfsmanna sem hætt hafa á árinu sökum aldurs.

 

  1. Önnur mál

6.1 Mannauðsmál.

RM ræddi um styttingu vinnuvikunnar.  Tilkynning um málefnið er inni á workplace, kom þar inn þann 17. desember. Nú hafa 150 starfsmenn séð fréttina. Rætt almennt um málið. Þá var umræða um skoðannakönnun í framhaldinu, fyrst nú í janúar og síðan í síðari hluta ársins.

ÞB ræddi læknamönnun í Grundarfirði.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:45

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.