Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 24. ágúst 2022 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þórir Bergmundsson er í veikindafríi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 18. maí 2022 lögð fram og samþykkt.
- Fjarvera framkvæmdastjóra lækninga
Rætt um fjarveru ÞB framkvæmdastjóra lækninga. Ekki liggur fyrir hve lengi hann verður frá, en fram kom að þó væri verið að horfa til 1. október, gæti verið skemur eða lengur. Þeir Björn Gunnarsson yfirlæknir svæfingadeilar mun fylla í hans skarð eins og kostur fyrir sjúkrasvið og Þórður Ingólfsson yfirlækir í Búðardal fyrir heilsugæslusvið.
Þá var umræða um kynningu fyrir sérnámsgrunnlækna sem verður á morgun á Landspítala, ásamt heimsókn læknanema þann 9. september hingað á HVE. Ingi Karl Reynisson mun fara á kynninguna á morgun fyrir hönd HVE.
Rætt um læknisþjónustu heilsugæslusviðs.
- Flutningur á vaktsíma heilsugæslunnar, 1700 til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Fjallað um flutning á vaktsíma heilsugæslunnar, símanúmer 1700 til HH frá 15. ágúst s.l. Nú er komið netspjall á heimasíðu hve.is, tengt við netspjall HH. Fram kom að HH sér um þessa þjónustu frá kl. 8:00 til 17:00 og læknavaktin tekur við frá 17:00 til 8:00. Fram kom að þessi þjónusta hafi afgreitt allt að 90% erindi með þessu móti.
ÞBH fór yfir verklag þjónustunnar, en fram kom að verkferlar væru mjög skýrir og eigi að leiðbeina þeim hjúkrunarfræðingum sem starfa í þjónustuverinu.
Umræða var um að breyta símsvörum hjá HVE, bæta við netspjalli við þann texta sem lesinn er. Þá mun ÞBH setja saman stutta kynningu á málinu til að setja í staðarblöð og á vef.
Sama netspjall er í boð í heimasíðum allra eða flestra heilsugæslustöðva ásamt heilsuveru.
- Skipan fulltrúa HVE í viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu
Þórður Guðnason var skipaður sem fulltrúi HVE í viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu.
Umræða var um verkefnið.
- Skipan fulltrúa HVE í öldungaráð Akraneskaupstaðar
Ragnheiður Helgadóttir er skipuð áfram fulltrúi í öldunaráð Akraneskaupstaðar.
- Verkefnastjórn um innleiðingu verklags vegna liðskiptaaðgerða
Sverrir Þór Kiernan hefur verið skipaður í verkefnisstjórnina. Lagðar fram tillögur starfshóps um gæðamál tengd liðskiptaaðgerðum.
- Frestun orlofs – tilkynning til forstöðumanna og mannauðsstjóra tilkynning frá FJS 7. júlí
Rætt um breytingar sem verða á uppsöfnun orlofs sem tekur gildi á næsta ári.
í pósti frá 7. júlí s.l. frá FJS kom eftirfarandi fram:
Fjársýsla ríkisins vill vekja athygli á því að flutningur orlofs milli orlofsára er óheimill skv. flestum kjarasamningum sem gerðir voru 2020.
Þetta er breyting frá því sem áður var þegar heimilt var að fresta allt að heilu orlofi milli ára.
Gefinn er aðlögunartími til 30. apríl 2023 en þá falla ónotaðir orlofsdagar niður.
Samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélagi Íslands er miðað við 30. apríl 2024.
Mikilvægt er að yfirmenn og starfsfólk sé meðvitað um þetta atriði og nýti sumarið og næstu mánuði til að nýta eldra orlof áður en það fyrnist.
4.6 Frestun orlofs
4.6.1 Flutningur orlofs milli ára er óheimill, sbr. þó grein 4.6.2 og 4.6.3.
4.6.2 Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi, að skriflegri beiðni yfirmanns, getur orlofið geymst til næsta orlofsárs, enda hafi starfsmaður ekki lokið orlofstöku á orlofsárinu.
Sama gildir um starfsmann í fæðingarorlofi. Í slíkum tilvikum getur uppsafnað orlof þó aldrei orðið meira en 60 dagar. Nýti starfsmaður ekki hina uppsöfnuðu orlofsdaga fyrnast þeir.
Upplýsingar um stöðu þegar áunnins og ótekins orlofs skulu vera starfsmönnum aðgengilegar í tímaskráningarkerfi stofnunar.
4.6.3 Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofs.
Tilkynna skal yfirmanni án tafar með sannanlegum hætti ef um veikindi eða slys í orlofi er að ræða. Í slíkum tilvikum er heimilt að flytja ótekið orlof til næsta árs.
4.6.4 Komi starfsmaður úr öðru starfi án þess að hafa þar notið áunnins orlofs, þá á hann rétt á launalausu orlofi þar til 30 daga orlofi er náð.
Rætt, málefnið verður kynnt vel fyrir starfsmönnum á næstunni.
- Yfirfærsla rekstrar frá dvalarheimili í Stykkishólmi
HVE tók við rekstri dvalarheimilisins í Stykkishólmi þann 1. júní 2022. Fyrst um sinn rekur HVE deildina í húsnæði Stykkishólmsbæjar en verið er að vinna að endurbótum í húsnæði HVE í Stykkishólmi, vonir standa til að flutningur verði um ármótin.
- Eftirlitsgerð vegna úttektar á gæðastýringu lækningatækja
Lögð fram efirlitsgerð vegna úttektar á gæðastýringu lækningatækja, dags. 1. júní 2022. Þar komu fram athugasemdir og tilmæli er snúa að gæðakerfum, en skrá þarf í gæðahandbók alla verkferla sem snúa að lækningatækjum og notkun þeirra. Halda þarf skráningu yfir þjálfun starfsmanna á lækningatæki, þá þarf að halda skráningu um endurþjálfun stafsmanna. Skrá skal viðhaldssögu hvers tækis. Einnig skal skrá öll atvik er snú að tækjum. Þá þarf að halda örugga skrá yfir lækningatæki til að auðvelda rekjanleika, líka um öll ígræðanleg lækningatæki. Afhenta þarf sjúklingum ígræðakort.
Jafnframt var úrbótaáætlun HVE frá júlí mánuði lögð fram og endurskoðuð úrbótaáætlun frá ágúst. Fram kom að umtalsverð vinna og kostnaður mun leggjast á HVE til að uppfylla þessar ábendingar.
- Staða framkvæmda í Stykkishólmi
Rætt um stöðu framkvæmda á hjúkrunardeild í Stykkishólmi. En fram kom þar að gert væri ráð fyrir verklokum í lok ársins. Ástæða tafa er aðallega vegna þess að ákveðið var að skipta um glugga í húsinu ásamt fleiri atriðum. Gert er ráð fyrir að gluggar komi nú í byrjun september. Þá er í umræðunni að fara að auki í framkvæmdir á 4. hæðinni í gamla húsinu.
- Heimsókn ráðherra 25.ágúst
Rætt var um heimsókn heilbrigðis ráðherra þann 25. ágúst og formlega opnun nýrrar skurðstofu.
Sbr. neðangreinda dagskrá:
Fulltrúar ráðuneytis mun koma til fundar með framkvæmdastjórnar kl. 13 á morgun.
Eftir hádegið á fimmtudaginn mun Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heimsækja HVE ásamt fulltrúum ráðuneytisins. Heimsóknin hefst á fundi ráðherra með framkvæmdastjórn kl. 13.
Heilbrigðisráðherra mun ávarpa móttöku sem verður í tilefni af formlegri opnun nýju skurðstofunnar og endurbótum á tveimur legudeildum á sjúkrahúsi HVE á Akranesi.
Móttakan hefst í stóru fundastofunni kl. 15:00 og starfsmenn HVE eru hjartanlega velkomnir.
Að ávörpum loknum verður boðið upp á veitingar og þeim sem vilja boðið að skoða nýju aðstöðuna á skurðstofunni undir leiðsögn starfsmanna þar og líta inn á legudeildir.
Rætt um helstu atriði sem fara þarf yfir.
JFJ fór yfir nokkrar glærur vegna fundarins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:45.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.