Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 24. nóvember 2021 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Vilborg Lárusdóttur og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerðir 3. og 10. nóvember 2021 lagðar fram og samþykktar.
- COVID, staðan og bólusetningar
Fjallað var um Covid stöðuna og bólusetningar. Fram kom hjá ÞB að ¼ hver annað hvort í sóttkví eða einangrun, nú væru 138 í sóttkví og 38 í einangrun. Tengist sama smiti og komu upp í byrjun mánaðarins. Grunnskólar og leikskólar eru nú lokaðir. Fjölbrautarskólinn er þó starfræktur, ÞB segir enga unglinga veika, veikindi eru þó almennt lítil og flestir eru börn undir 12 ára. Hér á Akranesi eru 38 í einangrun og 93 í sóttkví. Sex bættust við í gær á Grundarfirði, allt börn. Á Hólmavík eru 8 í einangrun, allt börn.
ÞBH fór yfir stöðu bólusetninga. Fram kom að Akranes og Borgarnes væru einu staðirnir sem boða fólk, hinir staðirnir hafa opið þegar hentar. Í dag voru blandaðir 1.000 skammtar á Akranesi og um 1.600 boðaðir, í gær fóru 77 skammtar í Ólafsvík og 76 í Stykkishólmi. 84 skammtar fara á Hvammstanga og 108 í Búðardal og morgun. Þá er stefnt að því að boða um 3.000 manns fyrir Akranes og Borgarnes 8. desember n.k. Ekki liggur fyrir hve margir eru búnir að fá örvunarbólusetningu á okkar svæði, en á landsvísu eru 111 þúsund búnir að fá örvunarbólusetningu.
RM sagði að 8. desember verði boðaðir um 1.000 manns, hún er að vinna að því að fá menntaskólann, 400 komu í síðustu viku. Stefnir að því að hafa þetta almennt einu sinni í mánuði.
- Gjöf frá Lionsklúbbi Akraness 15.11.21
Lionsklúbbur Akranes færði HVE lífsmarkakerfi, þ.e. einn fastan vaktara og tvo þráðlausa, að verðmæti kr. 3.707.600,-. JFJ fjallaði um gjöfina og móttöku sem haldin var með Lionsmönnum til heiðurs í síðustu viku. Þar kom m.a. fram að hluti gjafarinnar er notaður til að uppfæra núverandi búnað.
Framkvæmdastjórn færði klúbbnum sínar bestu þakkir.
- Fjárveitingar til tækjakaupa
- Fjárveiting til tækjakaupa 2021 vegna liðskiptaaðgerða.
JFJ sagði frá fjárveitingu til tækjakaupa vegna liðskiptaaðgerða og uppsetningu á skurðstofu 3, samtals fengust 70 m.kr. Framlagið kemur úr 270 m.kr. potti ráðuneytis til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.
Lagt fram bréf heilbrigðisráðuneytis dags. 18. nóvember 2021.
- Fjárveiting til kaupa á tæknilausn fyrir fjar- /skjáheimsóknir fólks í heimahjúkrun.
Fram kom hjá JFJ að verið væri að veita HVE 9 m.kr. til tæknilausna fyrir fjar- og skjáheimsóknir fyrir fólk í heimahjúkrun. Heilsugæslunni í Borgarnesi hefur verið falið að leiða innleiðinguna á þessum búnaði, m.a. í ljósi dreifbýlis þar.
- Fjárveitingar til sérnáms hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu og beiðni um aðrar launaðar námsstöður
ÞBH sagði frá fjárveitingu til sérnámsstöðu hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu, um er að ræða 2 stöður.
Lagt fram bréf heilbrigðisráðuneytis dags. 16. nóvember 2021 vegna málsins.
- Betri vinnutími – eftirfylgni
Fjallað um betri vinnutíma og eftirfylgni varðandi vaktavinnuhópa. Vilborg fór yfir efnið. Fram kom að heilbrigðisráðuneytið hafi kallað eftir gögnum um hvernig verkefnið hafi gengið. Rætt um að taka þurfi mið af þeim lágmarksrekstri sem verið hefur undanfarna mánuði vegna framkvæmda og skerðingu á starfsemi þetta tímabil. Benda þarf sérstaklega á þessi frávik.
Lögð fram gögn um fund launagreiðenda frá 17. nóvember og leiðbeiningar stýrihóps.
- Bréf frá HRN til mennta- og heilbrigðisstofnana sem mennta heilbrigðisstarfsmenn.
Rætt um fjölda nema hjá HVE. Fram kom að nemar tengdust 12 heilbrigðisstéttum og í heild 84 nemar hafa farið í gegn hjá okkur á árinu. Lagt fram yfirlit um fjölda nema í spurningar til heilbrigðisstofnana.
Rætt um hve HÍ væri langt á eftir í umsögnum leiðbeinenda, t.d. þarf að handskrifa á eyðublöð í stað þess að skrá í tölvukerfi. Umsagnir vegna náms sem koma frá öðrum háskólum hafa verið gerðar rafrænt til margra ára. ÞB sagði þó að læknadeildin hafi innleitt rafræn kerfi til þessa fyrir nokkrum árum.
- Ráðstöfun fjármagns til aukinnar geðheilbrigðisþjónustu við framhaldsskóla
JFJ fór yfir erindi heilbrigðisráðuneytisins frá 17. nóvember þar sem fjallað er um eflingu á geðheilbrigðisþjónustu á framhaldsskólastigi.
Fram kom í erindinu að heilbrigðisstofnun viðkomandi svæðis og framhaldsskóli eða -skólar á viðkomandi svæði gera með sér samkomulag um hvernig þjónusta verður framkvæmd, allt eftir þörfum og björgum á hverju svæði fyrir sig. Gert er ráð fyrir að viðkomandi stjórni því hvort samkomulagið gildi fyrir vorönn 2022 einvörðungu eða einnig fyrir haustönn 2022.
Fjármagninu verður veitt til heilbrigðisstofnana heilbrigðisumdæma landsins í hlutfalli við fjölda framhaldsskóla og nemenda á viðkomandi svæði.
Rætt um málefnið, umræða var um hvernig heilbrigðsstarfsmaður þetta væri og hvort viðkomandi ætti að vera starfandi í skólum eða á heilsugæslustöð.
JFJ sýndi lítilega viðmið fyrir heilsueflingu í framhaldsskólum gefið út af embætti landlæknis.
Skólastjórar verða boðnir á fund með JFJ, ÞBH og RM vegna málsins á næstu dögum.
VL benti á að hörgull væri á hjúkrunarfræðingum og sálfræðingum, horfa mætti til annarra stétta, svo sem iðjuþjálfa, næringarfræðinga og fleira.
- Bréf til fyrirtækja á Vesturlandi 09.11.21
Lagt fram bréf frá Háskólanum á Bifröst til fyrirtæka á Vesturlandi, frá október 2021 til kynningar. Þar er fjallað um möguleg nemandaverkefnið og starfsnámi hjá fyrirtækjum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:27
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.