Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 25. febrúar 2026 kl. 9:00.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 18. febrúar 2026 lögð fram og samþykkt.

  • Fjármál og rekstur.

Fjallað um fjármál og rekstur.  Ekki hafa fengist viðbrögð frá HBR vegna rekstrarstöðu, hvorki varðandi síðasta ár né þetta, vísa í fyrri fundargerðir um málefnið.

Lagt fram og rætt um yfirlit vegna sjúkraflutninga síðasta árs sem tekið var saman fyrir HBR vegna málsins.

SES fjallaði um fund sinn í gær með stjórnendum varðandi þjónustu á skurðsviði, legudeildum og endurhæfingu.    Fram kom hjá honum að unnið verður frekar að skipulagi þessa árs, en það liggur fyrir að það verði borð fyrir báru í skurðtíma, t.d. vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar á kvensjúkdómaaðgerðum á þessu ári fram til hausts.  Til skoðunar verður að fjölga kviðslitsaðgerðum, gera Turpaðgerðir og fjölga liðskiptaaðgerðum.  Þá var rætt um brotaþjónustu á bæklunarsviði.

JFJ fór yfir biðlista hjá okkur.  

Gerður hefur verið samningur við Landspítala um þjónustu kvensjúkdómalæknis varðandi áhættumeðgöngu, læknir kemur á HVE tvisvar sinnum í mánuði.

  • Fjármögnunarlíkna heilsugæslunnar.

Lögð fram og fjallað um fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar, janúar 2026.   Rætt um líkanið.

  • Geðheilbrigðisþjónusta og skortur á sálfræðingum.

Rætt um fund með Emil Einarssyni yfirsálfræðingi sem haldinn var 23. feb. þar sem farið var yfir mönnun í sálfræðiþjónustu. Biðtími eftir sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna er langur þar sem einn sálfræðingur er nýlega hættur og annar í barnsburðarleyfi. Ágæt staða er á biðlista eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn. Verið er að auglýsa í þriðja sinn.

Ákveðið var að leita nýrra leiða og skoða m.a. möguleika á tímabundinni þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðings.

Lögð fram stöðuskýrsla varðandi umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu barna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:50

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.