Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 25. mars 2020 kl. 13:30 í teams.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura B Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerðir frá 18. og 23. mars 2020 lagðar fram og samþykktar.
- Erindi um blóðskilun
Fjallað um erindi sem barst 15. mars 2020 þar sem óskað eftir því að blóðskilun verði framkvæmd á sjúkrahúsinu á Akranesi. Sambærilegt mál var tekið fyrir og fékk ítarlega umfjöllun fyrir nokkrum árum. Málið verður skoðað vandlega af JFJ og ÞB í samráði við Landsspítala, en vænta má að niðurstaða málsins tefjist í ljósi Covid faraldurins.
- COVID-19 m.a.
- Staðan í dag
Fjallað almennt um stöðuna í dag, rætt um þróunina eins og hún er núna. Búast má við að það geti orðið þjónustufall á einhverjum stöðum hjá HVE, t.d. fengust læknar fyrir þá sem lentu í sóttkví á Hvammstanga og Grundarfirði, það er alls ekki sjálfgefið. Ljóst er að ýmsir starfsmenn hafa mun minni verkefni en verið hefur á venjulegum tíma, að sama skapi aukast verkefni annarra.
Verulega hefur verið dregið úr hefðbundinni þjónustu á öllum stöðum skv. þeim upplýsingum sem við höfum.
- Strangara samkomubann og aðgerðabann
Fjallað um samkomubann, aðgerðarbann og aðskilnað starfsmanna. Fram kom að nauðsynlegt sé að ítreka að starfsmenn haldi 2ja metra fjarlægð frá sjúklingum sem og samstarfsfólki.
- Framvinda frá síðasta fundi og útfærsla samkomubanns innan stofnunar.
Rætt. Eina sem virðist virka er að fækka stólum.
- Starfsmenn sem vinna á fleiri en einni deild / starfsstöð.
Rætt um málefnið. Fram kom að 34 starfsmenn vinna á fleiri en einni deild eða starfsstöð. Framkvæmdastjórn óskar eftir því að stjórnendur HVE lágmarki tíðni þess að starfsfólk fari á milli deilda eða starfsstöðva til að taka stakar vaktir eins og hægt er.
Nokkuð hefur verið um að læknar frá Landsspítala hafi tekið vaktir hér en þessar vaktir hafa verið skipulagðar með öðrum hætti núna.
ÞBH er í viðræðum við Landsspítala um stafsmenn sem vinna bæði hér og á Landsspítala.
Borgarnes. Umræða var um starfsmenn með börn á leikskólaaldri, en fram kom að allir leikskólar í Borgarnesi væru komnir í sóttkví.
Ólafsvík. Móttökuritari og heilbrigðisgagnafræðingur hafa skipt sér upp og hjúkrunarfræðingar tryggja fjarlægð.
Grundarfjörður. Sama og í Ólafsvík og sjúkraþjálfun hefur lagst af.
Stykkishólmur. Háls- og bakdeild er að loka og verður fram yfir páska í það minnsta. Starfið virðast ganga samkvæmt venju. Vöntun á starfsfólki eins og fyrr.
Búðardalur. Allt í ágætu jafnvægi þar.
Hólmavík. Þar tryggja menn fjarlægðir, yfirhjúkrunarfræðingur þar er að láta af störfum nú um mánaðarmótin. Sérstaklega kom fram að súrefnisstaða þar væri góð.
Hvammstangi. Reglulegt samband er við deildina þar, fram kom að starfið gangi þokkalega en þungt er yfir starfseminni í ljósi faraldursins þar. Eins og staðan er nú þá er engin sjúklingur með covid.
Tekin hafa verið um 60 sýni í Hvammstanga, fjöldi sýktra í bænum eru nú 16. ÞB er í reglulegu sambandi við yfirlækni þar.
Akranes. Beðið er eftir svari um test á starfsmönnum.
e. Viðvera starfsmanna og fjarvistir
Rætt um viðveru starfsmanna og fjarvistir í tengslum við skiptingu þeirra, t.d. vegna færri verkefna og aðskilnað starfsmanna. ÁÁ nefnir að setja þurfi fram formlegt skipulag og samantekt af framkvæmdastjórn um þetta í samráði við stjórnendur.
Rætt um birgðir og fleira.
ÞBH sagði að hún hafi farið fram á að deildir ynnu að tilfellagreiningu, þ.e. hver skipulögð viðbrögð væru ef smitaður einstaklingur kæmi á þeirra einingu.
Rætt um samantekt upplýsinga um fjölda veikra, fjölda í sóttkví og þess háttar hjá okkur. Mannauðsstjóri tekur þetta saman.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:00
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.