Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 25. mars 2026 kl. 9:00.  

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir, Vilborg Lársdóttir, Sigurður E. Sigurðsson og Ásgeir Ásgeirsson.  

 

Dagskrá.  

1. Samþykkt síðustu fundargerðar.  

Fundargerð frá 18. mars 2026 lögð fram og samþykkt.  

2. Fjármál og rekstur.  

Rekstraryfirlit fyrir janúar til febrúar 2026 lagt fram og rætt. Fram kemur þar að rekstrarhalli tímabilsins nemur 100 m.kr. eða 6,6% fram yfir fjárlög.  

Stærsta ástæða þessa halla er eins og áður hefur komið fram vanreikningur á launabótum, sérstaklega vegna læknasamninga sem gerðir voru á síðasta ári. Þessi halli er raunar á pari við þá rekstrarspá sem kynnt var fyrir heilbrigðisráðuneyti í byrjun þessa árs. Þá var umræða um rekstrarfund sem haldinn var s.l. mánudag með heilbrigðisráðuneyti þar sem fjallað var um helstu frávik rekstrar ársins 2025 og á þessu ári.  Þar kom m.a. fram að um 80% halla megi rekja til nýrra kjarasamninga ríkisins.  

 

3. Verkefni fjarheilbrigðisþjónustu Stykkishólmi  

SES fjallaði um verkefni fjarheilbrigðisþjónustu vegna háls- og bakdeildar í Stykkishólmi. Þá var lögð fram verktillaga og tillaga um aðkomu sérfræðings FJS við undirbúning og framkvæmd nýsköpunarverkefnis.  

Framkvæmdastjórn samþykkir að halda áfram með verkefnið og ganga að tillögu FJS.  

 

4. Miðlægur biðlisti skurðaðgerða.  

Lagður fram tölvupóstur frá embætti landlæknis, frá 16. mars 2026 um að stefnt sé að því að setja á fót miðlæga biðlista hjá EL um konur sem eru á bið eftir aðgerð vegna endómetríósu. Óskað var eftir því að sjúkrahúsið á Akranesi skili gögnum varðandi þær konur sem eru á biðlista til EL. Um er að ræða sama fyrirkomulag og er varðandi liðskiptaaðgerðir á HVE. Frá og með 1. apríl n.k. verður unnið að því að nýjar beiðnir vegna þessara aðgerða verði settar inn á miðlægan biðlista.  Jafnframt verður unnið að sambærilegri innleiðingu vegna almennra skurðlækninga. SES og HG taka að sér málið.  

 

5. Heimaspítali og starfsemi slysadeildar  

HG fjallað um heimaspítala og starfsemi slysadeildar . Fram kom hjá henni að vinna væri í gangi með skipulag slysadeildar með vaktþjónustu sjúkraflutningamanna. Þá er vinna í gangi vegna heimaspítala verkefnis.  HG sagði að eftir lauslega athugun á inniliggjandi sjúklingum gæti hluti þeirra sannarlega verið heima með heimaspítala þjónustu, sérstaklega vegna lyfjagjafa og fleira. Horft verður sérstaklega til heimaspítalaþjónustu Landspítalans og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.  

 

6. Endurskoðun löggiltra sérgreina í læknisfræði – lagt fram.  

Lagt fram bréf dags. 18. mars 2026, málsnúmer HRN25110006 varðandi endurskoðun löggiltra sérgreina í læknisfræði.  HRN skipaði spretthóp um endurskoðun löggiltra sérgreina í læknisfræði í janúar síðastliðnum. Hópnum er ætlað að endurskoða löggildingar sérgreina, þ.e. aðal-, undir- og viðbótarsérgreina. Samkvæmt reglugerðinni eru yfir fimmtíu aðalsérgreinar og hundrað undirsérgreinar löggildar hér á landi, ásamt þremur viðbótarsérgreinum.  Í erindinu er óskað eftir að skoðað verði út frá skipulagi heilbrigðisþjónustu innan stofnunarinnar og lagt mat á áhrif mögulegra breytinga.  Rætt um málefnið, sérstaklega var fjallað um heimilislækningar, m.a. um héraðslækningar á því sviði.  Framkvæmdastjórn sér ekki ástæðu til að fækka viðurkenndum sérgreinum sem í gildi eru, enda er það alltaf þörf á hverri sérgrein fyrir sig sem ræður ráðningu lækna.  

7. Dagskrá á stjórnendadegi 22. apríl 2026.  

Fjallað um dagskrá stjórnendadagsins og lögð fram dagskrá dagsins.  

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:25 Ásgeir Á. ritaði fundargerð.