Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 25. ágúst 2021 kl. 13:00 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson og Vilborg Lárusdóttir.  

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 18. ágúst lögð fram og samþykkt.

  1. Covid, bólusetningar og reglur hraðprófa fyrir skimanir.

Fjallað um bólusetningar og reglur hraðprófa fyrir skimanir.   Fjölgun er á smitun á Vesturlandi, nú eru 33 í einangrun, voru 20 fyrir viku síðan og 75 í sóttkví.  Þá kom fram að veikindi væru almennt ekki mikil.

Fram kom að bólusetningar gengju vel og stefnt er á að taka upp fastar mánaðarlegar bólusetningar.  Börnum á aldrinum 12 til 15 ára hefur verið boðið bólusetning.

Unnið er að skipulagi vinnureglna um hraðpóf.

 

  1. Framkvæmdir.

JFJ fór yfir framkvæmdir.

Á Akranesi er verkið á legudeildum á áætlun, beðið er eftir útektaraðila fyrir þennan verkhluta.  Upp komu frávik á B-deildinni sem gæti tafið verkið þar eitthvað lítilega. Ætti ekki að hafa áhrif á A-deildina. Hvað varðar skurðstofuna, þá eru viðræður við verktaka um þá framkvæmd, búið er að panta efni í skurðstofuna sjálfa og kallað hefur verið eftir tilboðum í búnað.  Nú þegar er búið að panta autoklafa.

Sjúkraþjálfun á Akranesi er tilbúin eftir lagfæringar.

Í Stykkishólmi ganga núverandi framkvæmdir ágætlega.

 

  1. Fundur með HRN vegna hjúkrunarrýma.

Rætt um fund með fulltrúum HRN vegna hjúkrunarrýma í Stykkishólmi.

 

  1. Gjafi og arfur til HVE á Akranesi.

Rætt um arf sem fékkst úr dánarbúi fyrir HVE á Akranesi.  Ráðist verður í tækjakaup í samræmi við erfðaskrá hið fyrsta.

Rebbekkustúkan nr. 5 Ásgerður I.O.O.F gaf heilsugæslunni á Akranesi kvenskoðunarbekk ásamt skoðunarljósi en fyrr á árinu gafa stúkan CMS Pagawriter TC30 Cardiograph ásamt hjólastandi.

Gjafi þessar eru hinar höfðingslegustu og þiggur HVE þær með þökkum.

  1. Kveðjuhóf hættra starfsmanna á HVE Akrnaesi.

Vilborg fjallaði um kveðjuhóf til hættra starfsmanna vegna aldurs á Akranesi, sem verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 18.  Verið er að kveðja eftirtalda starfsmenn:  Anna Auðbjörg Jakobsdóttir, Ólöf Hannesdóttir, Gísli Björnsson, Lára Dóra Oddsdóttir, Ragnheiður Þ. Benediktsdóttir, Ragnhildur Bjarnadóttir, Ríkey Andrésdóttir, Sigrún Ásmundsdóttir og Erla Lind Þorvaldsdóttir.

  1. Verkefni næstu vikna.

Fjallað um helstu verkefni næstu vikna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:30.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.