Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, föstudaginn 25. október 2019 kl. 13:00 á Akranesi.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 9. október 2019 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Afhending gjafa 23. október.

Fjallað um afhendingu gjafa frá Hollvinasamtökum HVE þann 23. október s.l.  En þar færðu samtökin HVE 12 rúm af gerðinni Eleganza 2 ásamt gálga og dýnum. Þessi rúm koma til viðbótar þeim 5 sem þegar höfðu verið afhent af samtökunum.  Gjöfin kemur í framhaldi af söfnun sem samtökin stóðu fyrir á árinu. Fram kom að það hafi verið um 22 nafngreindir gefendur ásamt árgjöldum starfsmanna.

Þessir gáfu:

Lionsklúbbur Borgarness, Bifreiðastöð ÞÞÞ, DalaJötnar ehf, Halldór B Hallgrímsson, Vignir G Jónsson, ehf, Nafnlaus gefandi, Verkalýðsfélag Akraness, Trélausnir sf, Sigur-garðar sf, Kvenfélag Borgarness, Til minningar um Sigríði Guðjónsdóttur, Brim hf, Kiwanisklúbburinn Þyrill, FEBAB kórinn, Karlakórinn Svanir og Tamango, Hvalfjarðarsveit, Sparisjóður Strandamanna, Kvenfélagið 19. júní, Hvanneyri Trésmiðjan Akur, Akraneskaupstaður, Gísli S. Jónsson ehf og Árgjöld félagsmanna.

 

  1. Erindi frá heilbrigðisráðuneytinu 24. október.

Lagt fram erindi frá heilbrigðisráðuneytinu frá 24. október 2019, þar sem fram kemur að heilbrigðisráðherra hefur samþykkt framkvæmd sem felur í sér standsetningu á viðbótarskurðstofu á Akranesi til að fjölga megi liðskipaaðgerðum. Framkvæmdastjórn fagnar þessum mikla áfanga í þjónustu og rekstri HVE til framtíðar.  Fulltrúar munu kynna þetta fyrir stjórnendum hið fyrsta.

 

  1. Undirbúningur rekstraráætlunar 2020.

Rætt um undirbúning rekstararáætlunar fyrir árið 2020.

 

  1. Stefnumótun til þriggja ára og stefnuskjal fyrir árið 2020, yfirferð texta.

Fjallað um stefnumótun til þriggja ára og stefnuskjal fyrir árið 2020.

 

  1. Rafmagnsleysi á HVE Akranesi 24. október.

Rætt um rafmagnsleysi sem varð þann 24. október á hluta bæjarins og þar með á HVE.  Fram kom að fundað hafi verið um málefnið og næstu viðbrögð.  En vinna þarf að nauðsynlegum úrbótum til að koma megi í veg fyrir vandamál tengdum rafmagnsleysi.

 

  1. Skipunarbréf stýrihóps um rafræna sjúkraskrá.

Samþykkt var að skipa eftirtalinna í stýrihóp um rafrænna sjúkraskrá hjá HVE.

  • Þuríður Þórðardóttir, deildarstjóri heilbrigðisgagnadeildar HVE, formaður
  • Klara B Gunnarsdóttir, heilbrigðisgagnafræðingur HVE Akranesi
  • Þórður Ingólfsson, yfirlæknir heilsugæslustöðvar HVE í Búðardal
  • Þura B. Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE

Hlutverk stýrihópsins er að:

  • Innleiða og fylgja eftir nýjungum í skráningu.
  • Samræma skráningu heilbrigðisstarfsmanna á HVE.
  • Stuðla að gæðum skráningar í sjúkraskrár.
  • Setja verklagsreglur og verklýsingar um skráningu.
  • Hvetja til vandaðra vinnubragða við skráningu í samræmi við lög og reglur.

 

  1. Málþing LH 14. nóvember.

Rætt um málþing LH sem haldið verður þann 14. nóvember n.k.

 

  1. Mannauðsmál.
  2. Boð til starfsmanna fæðingardeildar HVE á námskeið í endurlífgun nýbura.

Landspítalinn bíður starfsmönnum fæðingadeildar HVE á námskeið um endurlífgun nýbura.

  1. Erindi frá Halldóri Hallgrímssyni.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:50.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.