Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 26. október 2022 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 12. október 2022 lögð fram og samþykkt.
- Rekstararáætlun
Rætt um gerð rekstraráætlunar fyrir næsta ár. Fram kom að m.v. framkomið fjárlagafrumvarp stefni í niðurskurð, sérstaklega á heilsugæslu- og hjúkrunarsviði. Sérstaklega var rætt um mikið frávik á vaktkostnaði lækna á fjármögnunarlíkani. Fram kom að ráðuneytinu hafi verið bent á þessa skekkju frá fyrri hluta ársins án þess að niðurstaða hafa fengist, á það hefur verið bent að draga þurfi úr vaktþjónustu til að mæta þessum mun.
- Undirbúningur fyrir fund með HRN
Fjallað um dagskrá fundarins, fundarmenn sammála um að aðalþungi fundarins þurfi að snúast um fjárveitingar.
Farið var yfir fjölda skilgreindra opinna rúma á hverri deild.
A-deild 16
B-deild 14
C-deild 10
Hólmavík 7
Hvammstangi 15
Stykkishólmur 18+4 frá 1. mars 2023.
- Staða aðstoðardeildarstjóra á handlækningadeild
ÞBH fjallaði um mögulega nýja stöðu aðstoðardeildarstjóra á Handlækningadeild. Samþykkt að auglýsa eftir aðstoðardeildarstjóra.
Rætt almennt um nýtingu deildarinnar.
- Jólaglaðningur til starfsmanna
Rætt um jólaglaðning til starfsmanna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:22
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.