Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 27. janúar 2021 kl. 9:30 um teams.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 20. janúar 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. Leghálsspeglanir – verkefni að beiðni HRN.

ÁÁ fjallaði um samkomulag HVE við Heilbrigðisráðuneytið um tímabundið átak til að vinna niður biðlista vegna leghálsspeglana.  Fram kom að áætlanir gera ráð fyrir að gerðar verði allt að 130 slíkar speglanir á mánuði vegna þeirra 260 kvenna sem bíða eftir rannsókn. Fengist hefur fjárveiting til að mæta kostnaði við 20% stöðu læknis og 20% stöðu sjúkraliða ásamt fjárveitingu til að kaupa búnað.

Jafnframt kom fram að gert hefur verið samkomulag við Krabbameinsfélagið um kaup á colposcope.

  1. Gerð rýmingaráætlunar fyrir HVE Akranesi.

JFJ fjallað um gerð rýmingaráætlunar fyrir HVE á Akranesi. Fyrirtækið Lota hefur komið að gerð áætlunarinnar í samráði við stjórnendur hér.  Lagði fram rýmingaráætlun til skoðunar ásamt drögum að skiltum með upplýsingum um viðbrögð við hættuástandi.  Farið yfir gögnin.

Fram kom að skylt er að tengja öryggiskerfi okkar við fyrirtæki eins og Öryggismiðstöðina sem dæmi.  HVE mun þá fara fram á að næsta viðbragð verði við húsverði hvers húsnæðis sem síðan hefur samaband við tilheyrandi viðbragðsaðila.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:19.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.

 

Að fundi loknum var fundað með umsjónarmönnum starfsstöðva.

 

Mættir: Framkvæmdastjórn, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Hrefna Frímansdóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir og Fanney Berit Sveinbjörnsdóttir.  Júlíana Einarsdóttir kom til fundar við 4 dagskrárlið.

 

Dagskrá.

  1. Fjármál og rekstur – endurskoðun rekstrararáætlunar ársins 2021

Fjallað um fjármál og rekstur og endurskoðun rekstraráætlunar ársins 2021.  Fram kom að hækkanir á fjárlögum ársins 2021 næmu nú samtals um 67,8 m.kr.   Að sama skapi hafa verði gerðar leiðréttingar vegna afturvirkra kjarasamninga á fjárlögum síðasta árs um sem nemur 115,8 m.kr. Rekstarniðurstaða síðasta árs verður því betri en því sem því nemur.  Heildar hækkun á milli ára nemur nú aðeins 1,2% eftir hækkanir á fjárlögum.

ÁÁ nefndi hækkanir rekstrarframlaga á heilsugæslusviði á milli ára, hækkun þar nemur 1% á milli ára, þrátt fyrir að launahækkun nemi um 4% að meðaltali á milli ára hjá flestum stéttum.  Rætt lítilega um fjármögnunarlíkanið.

  1. Covid: Staðan og bólusetningar

ÞB sagði stöðuna í dag góða. Nú eru 2 í einangrun á Vesturlandi.

Þriðjudaginn 2. febrúar n.k. kemur næsta sending bóluefnis.  ÞBH sagði að klárað hafi verið að bólusetja alla á hjúkrunar- og dvalarheimilum.  Jafnframt er búið að bólusetja þá sem eru í heimahjúkrun með fyrri skammtinn og allir sjúkraflutingamenn eru búnar. N.k. þriðjudag verður unnið eftir reglum um bólusetningu framlínustarfsmanna.

JFJ þakkaði ÞB, ÞBH og RM fyrir hve vel þau hafa staðið að þessu skipulagi.

  1. Fréttir frá starfsstöðvunum- farinn hringur
  1. Fagráð á HVE

JFJ fjallað um fagráð á HVE og lagði fram til kynningar reglu um skipun og verklag fagráða.  Fram kom að áður hafi verð ákveðið að skipa 5 stafsmenn í fagráðið hjá HVE.

Reglugerðin kveður á að í fagráði skulu vera fastur fulltrúi lækna og hjúkrunarfræðinga.

Samþykkt að fara eftir reglugerðinni og óskað verður eftir tilnefningum eða eftir áhugasömum aðilum.

  1. Stytting vinnutíma/betri vinnutími – staðan

JE fór yfir málefnið vegna vaktavinnufólks.   Fram kom að beðið væri eftir eyðublaði sem starfsmenn eiga að kvitta undir vegna málsins.  Nú eru í gangi umbótarsamtal við starfsmenn.

  1. Efni í ársskýrslu 2020

JFJ kynnti lítillega vinnu við ársskýrslu ársins 2020.  Fyrirhugað er að hún verði með sama sniði og síðasta ár.

  1. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:07

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.