Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn og svæðisfulltrúum, miðvikudaginn 27. febrúar 2019 kl. 10:00 í Stykkishólmi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson, Hrefna Frímannsdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson.
Dagskrá.
JFJ kynnti fjárveitingu að fjárhæð 46 m.kr. til HVE til að styrkja og auka við geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu. Fram kom að gert væri ráð fyrir að setja upp geðheilbrigðsteymi vegna þessa. LK sagði frá skipulagi og framvindu málsins. Fram kom í umræðum að lögð verði áhersla á samstarf við sveitarfélöginn á svæðinu og að þetta verði ekki til þessa að sveitarfélög dragi úr sinni þjónustu á þessu sviði. Stefnt verður að því að auglýst verði hið allra fyrsta.
Gert er ráða fyrir að teymið verði skipað á eftirfarandi hátt:
Sálfræðingur, annar teymisstjóri, 2,0 staða
Geðhjúkrunarfræðingur, 1,0 staða
Geðlæknir, 0,25 staða
Sjúkraþjálfi, hreyfistjóri, 0,25 staða.
Áfengis og vímuefnaráðgjafi, 0,20 staða.
Samtals 3,7 stöður.
Þá munu heilsugæslulæknar á svæðinu koma að málefninu og einn verði sérstaklega skilgreindur sem hluti af teyminu.
Lítillega fjallað um tækja- og búnaðarkaup, fyrir árið 2018 og 2019 ásamt skráningu í eignaskrá.
- Endurskoðun skipurits HVE.
Fjallað um endurskoðun skipurits HVE, JFJ kynnti tillögur að nýju skipuriti. Núverandi skipurit tók gildi árið 2011 og er orðið nokkuð frábrugðið skipuritun annarra heilbrigðisstofnana.
- Endurskoðun þriggja ára starfsáætlunar HVE.
Fjallað um endurskoðun á þriggja ára starfsáætlun HVE. Rætt um hvort eigi að skipuleggja nokkra fundi með stjórnendum eða einn stóran fund sem fjallað verður um málið. Samþykkt var að hafa einn stóran fund með stjórnendum. Fundarmenn voru samála um að setja upp og skipuleggja vel forvinnu og undirbúning fyrir fundinn. Stefnt að hafa fundinn miðvikudaginn 10. apríl.
Á fundin verða boðaðir allir stjórnendur HVE.
- Endurskoðun jafnréttisáætlunar HVE.
Fjallað um jafnréttisáætlun HVE, en tímabært er að endurskoða áætlunina, síðasta áætlun var gerð árið 2016.
- Önnur mál.
5.1 Sérnámsstöður lækna.
LK sagði frá því að á næstu dögum verði auglýstar tvær stöður sérnámslækna, ein í Borgarnesi og ein á Akranesi, námið verður unnið í samstarfi þessara staða.
5.2 Vinnuhópur um samstarf heilsugæslunnar á Snæfellsnesi.
RM og LK ræddu um fundi vegna samstarf heilsugæslunnar. Fram kom að verkefnið sé komið vel á veg og tillögur liggi fyrir fljótlega.
5.3 Heilsuefling á vinnustöðum.
Rætt um verkefni Embættis landlæknis, Virk og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu á vinnustöðum.
Markmið verkefnisins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði. Í samstarfinu felst mótun viðmiða fyrir heilsueflandi vinnustaði sem og upplýsingamiðlun til að tryggja að vinnustaðir hafi góð verkfæri til að skapa heilsueflandi umhverfi
Samþykkt að fela Jóhanni Birni formanni öryggisnefndar að skoða möguleika á þátttöku í verkefninu.
5.4 Liðskiptaaðgerðir.
LK ræddi um verkefni sem nýlega fór í gang um staðlaða nálgun og bréf er snúa að undirbúningi og skipulagi fyrir aðgerðir og endurhæfingu.
5.5 Afleysingar og sumarið.
Rætt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.