Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn HVE, miðvikudaginn 27. maí 2020 kl. 10:00 á Akranesi um Teams.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 20. maí 2020 lögð fram og samþykkt.

  1. Fjarheilbrigðisþjónsta á HVE.

ÞBH fjallaði um fjarheilbrigðsþjónustu hjá HVE.  Fram kom hjá henni að óskað hafi verið eftir því frá Huldu Gestsdóttur að settur verði upp stýrihópur um fjarheilbrigðisþjónustu og eflingu hennar.  Þá kom fram að bæta þurfi tövubúnað, þ.e. með myndavélum og fleira.

Samþykkt að framkvæmdastjórn fundi með HG vegna málsins n.k. miðvikudag kl. 10:30

  1. Rafræn lyfjafyrirmæli.

ÞB fór yfir rafræn lyfjafyrirmæli, en bréf hefur komið frá deildarstjóra handlækningadeildar þar sem bent er á þá annmarka sem fylgja því að hafa ekki innleitt rafrænt lyfja- og fyrirmælakerfi hér á stofnuninni.

Fram kom að nú ætti að vera komið fyrirmælakerfi í Sögukerfið en lyfjafyrirmælakerfið vantar.

Fengin verði kynning á mögulegum lausnum hið allra fyrsta frá Origo. Stýrihópur um rafræna sjúkraskrá þarf að koma að málinu. Rætt um hvort rétt væri að bæta lækni og hjúkrunarfræðingi frá legudeildum í stýrihópinn.

  1. Erindi frá Helgu Hreiðarsdóttur.

Lagt fram erindi frá Helgu Hreiðarsdóttur yfirhjúkrunarfræðingi og ljósmóður á heilsugæslunni á Hvammstanga frá 18. maí 2020.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:55

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.