Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 28. janúar 2026 kl. 10:30.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Hulda Gestsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Sigurður E. Sigurðsson er forfallaður og Vilborg Lárusdóttir er á námskeiði.
Dagskrá.
- Verkefni tengt heilsuveru. Eva Rós og Klara Berglind koma til fundar.
Eva Rós og Klara Berglind komu til fundar og kynntu verkefni tengt Heilsuveru.
Framkvæmdastjórn mun kynna fyrir heilsugæslum HVE að tekin hafi verið ákvörðun um að innleiða skilaboð í heilsuveru eins og gert er á öðrum heilbrigðisstofnunum á næstu vikum, stefnt er að 1. mars.
Innleiðing og kynning verður í höndum Evu og Klöru.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 21. janúar 2026 lögð fram og samþykkt.
- Fjármál og rekstur.
Fjallað um fjármál og rekstur, lagður fram tölvupóstur JFJ til heilbrigðisráðuneytis dags. 22. janúar. Þar kom fram yfirlit yfir áætlaðan rekstrarhalla síðasta árs ásamt áætlaðri útkomu þessa árs. Fram kom að miðað við stöðuna núna sé gert ráð fyrir um 408 m.kr. halla á síðasta ári og samkvæmt drögum að áætlun þessa árs verði hallinn að lágmarki 519 m.kr. Þessi halli helgast af nýjum kjarasamningum sem ekki hafa fengist launabætur fyrir.
Fram kom að ráðuneytið hafi boðað fund á næstunni vegna málsins.
- Fundur með stjórnendum og efni á fyrirhugaðan stjórnendadag í vor.
Rætt um fund og dagskrá með stjórnendum og fyrirhugaðan stjórnendadaga. Stefnt að því að hafa stjórnendadag hér á Akranesi þann 22. eða 29. apríl frá kl. 9 til 15.
Dagskránni verður skipt á milli mannauðsmála og gæðamála.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:55.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.