Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 28. apríl 2021 kl. 9:30 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 14. apríl 2021 lögð fram og samþykkt.
- Covid og staða bólusetninga
Fjallað um covid stöðuna í dag. Fram kom hjá ÞB að enginn væri skráður í einangrun í einangrun. Nú eru 177 í einangrun á landsvísu, 443 eru í sóttkví og 917 í skimunarsóttkví, 4 eru á sjúkrahúsi. Sagði að það væri nú væri faraldur í Þorlákshöfn.
ÞBH sagði að verið væri að gefa 300 skammta af Pfizer hér á Akranesi og ríflega 400 skammtar af AstraZeneca, þá verða bólusettir tæplega 300 í Borgarnesi með AstraZeneca í dag, um 100 í Ólafsvík og um 50 í Grundarfirði. Þá verða bólasetningar á öðrum stöðum hjá HVE á morgun, fimmtudag. Í heild verða þetta um 1500 manns sem fá bólusetningu á okkar svæði í þessari viku.
Rætt um mikið álag vegna símtala við starfsmenn vegna fyrirspurna um bólusetninga. Spurning um að vísa þessu á sérstakt netfang.
Fram kom að um 1/3 Vestlendinga hafi nú fengið bólusetningu. Eftir þessa viku verða allir eldri en 60 ára bólusettir á okkar svæði, þá mun stór hópur þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma verða bólusettir að auki.
Umræða var um bólusetningar, t.d. eru um 600 manns sem fá ekki annann skammt af AstraZeneca. Fram kom hjá ÞBH að ekki megi gefa konum undir 55 ára MRA bóluefni samkvæmt kerfinu, en fyrirmæli gera ráð fyrir öðru, þ.e. að gefa Jensen bóluefni.
- Staðan á auglýstum stöðum lækna, sálfræðinga og annarra starfsmanna.
Farið yfir stöðuna á auglýstum stöðum lækna, sálfæðinga og annarra starfsmanna. Enginn hefur sótt um og ekki hafa komið neinar fyrirspurnir. Auglýsingafrestur er til 15. maí n.k. svo ekki er öll von út eins og er.
- Rýmingaráætlun HVE Akranesi – athugasemdir fyrir lokafrágang.
Umræða um rýmingaráætlun verður tekin á næsta fundi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:55
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.