Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 29. maí 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. 

 

Þá komu svæðisfulltrúar á fundinn kl. 10:00:  Hrefna Frímannsdóttir, Ásthildur Erlingsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson. Vilborg Lárusdóttir mannauðsstjóri kom einnig á fundinn með svæðisfulltrúum.  

 

 

  1. Upplýsingar af samráðsfundi ráðherra með forstjórum heilbrigðisstofnana.

JFJ fjallaði um samráðsfund sem haldin var með ráðherra heilbrigðismála fimmtudaginn 23. maí 2019.

Lýsti hún ánægju sinni yfir því fyrirkomulagi að reglulega séu nú haldnir með stofnunum.  Á fundinum var til umræðu að setja upp samræmdari mælikvarða stofnana, ráðgert er að setja upp svokallað mælaborð með upplýsingum um ýmsa þætti þjónustu og starfsemi með reglubundnum hætti.

  1. Biðlistaaðgerðir – aukið samstarf stofnana um fræðslu sjúklinga fyrir liðskiptaaðgerðir.

JFJ kynnti áætlanir um aukið samstarf stofnana um fræðslu til sjúklinga fyrir liðskiptaaðgerðir.  Landsspítali mun hafa forgöngu um að gera app fyrir síma og spjaldtölvur með fræðslu fyrir liðskiptasjúklinga, fyrir og eftir aðgerð.

Fundarmenn sammála um að vera með Landsspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri í þessari vinnu.

  1. Húsnæðismál heilsugæslu á Akranesi.

Fjallað var um húsnæðismál heilsugæslunnar á Akranesi, en mjög er orðið aðþrengt að starfseminni og leita þarf leiða til að bæta þar úr.

Ákveðið er að hitta stjórnendur heilsugæslunnar í næstu viku vegna málsins.

  1. Öryggishnappar.

Rætt um öryggishnappa fyrir starfsmenn á Akranesi sem eru einir á vinnusvæðum sínum utan daglegs vinnutíma.

Samþykkt að taka tilboði frá Öryggismiðstöðinni. ÁÁ og JFJ munu klára málið.

  1. Heimsókn þýskra þingmanna.

20 þýskir þingmenn koma í heimsókn á Akranes kl.13:00 í dag.

  1. Fundur með svæðisfulltrúum.

Lögð fram ársskýrsla HVE fyrir árið 2018.

ÁÁ fjallaði um ársreikning fyrir árið 2018, var þó birtur með fyrirvara um lokafrágang Fjársýslu ríkisins.

  1. Stofnun ársins.

Vilborg Lárusdóttur fjallaði um Stofnun ársins.

Fram kom í máli hennar að HVE hafi skorað hæst í ánægjuvog af heilbrigðisstofnunum, Landsspítala, SAk og Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.  Til dæmis var HVE nr. 39 af heildarfjölda sem telur 84 af stórum stofnunum.  Til samanburðar var Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins nr. 44 og Landsspítalinn nr. 73.  HVE skoraði hvað hæst í svörum varðandi starfsanda og ánægju og stolt.

  1. Starfsáætlun

JFJ fór yfir svið starfsáætlunar, heilsugæslusvið, sjúkrasvið, hjúkrunarsvið, rekstur, öryggi og gæði og mannauður.

VL fjallaði sérstaklega um mannauðsmál og tækifæri þar.  Sérstaklega þarf að leggja áherslu á mönnun, fræðslu- og upplýsingamiðlun og samskipti.

  1. Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar.

Rætt um málefnið. Fram kom að rauði þráðurinn í þessu er að fjármagn skuli fylgja sjúklingi.    Fundarmenn munu fá kynningarefnið um málið.

  1. Kynning á nýju sölu- og innheimtukerfi.

ÁÁ fjallaði um nýtt sölu- og innheimtukerfi fyrir afgreiðslur sem tekið verður í notkun nú í sumar.

  1. Kynning á gæðaverkefni um rauntíma lyfjakort.

RM fjallaði um gæðaverkefni um rauntíma lyfjakorta, en árið 2017 fékkst styrkur til að fara í verkefnið.   Búið er að vinna verklagsreglur fyrir sjúkradeildir, heilsugæslur, heimahjúkrun, yfirferð lyfjakorta fyrir 70 ára og eldri.   Farið yfir málefnið og framvindu.

  1. Önnur mál.

Ásthildur fór yfir málefni Grundarfjarðar. Fjallaði um mannabreytingar og læknisþjónustu.

Hrefna fjallaði um málefni Stykkishólms. Sérstaklega um væntanlega lokun legudeildarinnar í sumar vegna þess að ekki tókst að manna í afleysingar þar.  Þá eru Lionsklúbbarnir í Stykkishólmi að gefa nýtt göngubretti til stofnunarinnar.

LK fjallaði um málefni í Borgarnesi. Ræddi um mannahald og læknisþjónustu.  Þann 1. september mun læknir byrja í sérnámsstöðu og mönnun frá hausti verður mun betri en verið hefur undanfarna mánuði.

RM fjallaði um mönnun hjúkrunarfræðinga.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:21.

Ásgeir  Á. ritaði fundargerð.