Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 29. nóvember 2017 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir: Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Dagskrá.

  1. Rekstraráætlun og stefnuskjal HVE fyrir árið 2018.

Fjallað um rekstraráætlun og stefnuskjal HVE fyrir árið 2018. Fram kom að vinnu við rekstraráætlun miðaði nokkuð áfram en þó væri aðeins í land með endanlega niðurstöðu. Stefnuskjalið er tilbúið og hefur verið sent til ráðuneytis.

  1. Bréf frá Öldungaráði Dalabyggðar og Reykhólahrepps.

Lagt fram bréf Öldungaráðs Dalabyggðar og Reykhólahrepps frá 13. nóvember 2017. Bréfritari óskar eftir aukinni samvinnu á milli heilsugæslunnar í Búðardal og Hólmavík og að það skipulag sem viðhaft hefur verið til þessa vegna heimahjúkrunar verði endurskoðað. Segja það skoðun sína að fjölga þurfi stöðugildum í heimahjúkrun á svæðinu, telja það einnig eðlilegt að hafa starfsmann á Reykhólum.

Rætt um málefnið. Fram kom að á þessu svæði hafi einstaklingum ekki fjölgað undanfarin ár, fremur fækkað þó að hlutfall aldraðra af íbúum hafi hækkað eitthvað. Samþykkt að Jóhanna og Rósa svari erindinu.

3. Yfirferð minnispunkta frá starfsmannafundum í síðustu viku.

Lögð fram samantekt frá starfsmannafundum á Snæfellsnesi. Rætt um helstu atriði sem fram komu á þessum fundum ásamt fundi með starfsmönnum á Akranesi og Hvammstanga.

  • Tímasetning starfsmannafunda sem eftir eru.

Stefnt á Búðardal og Hólmavík þann 6. desember og Borgarnes þann 14. desember.

  1. Næsti fundur með svæðisfulltrúum.

Samþykkt að bjóða svæðisfulltrúum á fund miðvikudaginn 13. desember n.k.

  1. Mannauðsmál.
  • Umsókn um stöðu læknis á Háls- og bakdeild.

Rætt um umsókn um yfirlæknisstöðu á Háls- og bakdeild. Ein umsókn hefur borist. Samþykkt að hefja viðræður við umsækjanda um starfið hið allra fyrsta og samið verði við hann til eins árs vegna Háls- og bakdeildar. Jafnframt hefur hann sótt eftir stöðu á heilsugæslunni á Akranesi á móti.

  • Starfsmannamál.

Rætt um aðstoðarlækna, fram kom að nú væri búið að manna stöður á HVE út júní 2019.

Fram kom að Hörður Þorgilsson sálfræðingur hefur upplýst að hann hafi ákveðið að hætta hér á Akranesi. Herði er þakkað gott samstarf á liðnum árum.

Rætt um mönnun hjúkrunar- og ljósmæðraþjónustu.

Umræða var um áfallateymið, skipa þarf nýja starfsmenn í stað Þuru Hreinsdóttur og Ólafíu Ingibjörgu Gunnardóttur sem hætt hafa í teyminu. Rósa tekur að sér málið.

  • Starfsmenn sem hætt hafa vegna aldurs.

Fyrirhugað er kveðjuhóf fyrir 3 starfsmenn þann 8. desember n.k. í Stykkishólmi.

Á Akranesi eru það 6 starfsmenn sem látið hafa af störfum sökum aldurs, stefnt er að kveðjuhófi nú í desember vegna þeirra.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:45.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.