Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 30. janúar 2019 kl. 10:00 á Akranesi.

 

Mættir:           Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.  Linda Kristjánsdóttir var á fundi um Workplace.  Vilborg Lárusdóttir sat fundinn.

Svæðisfulltrúar, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Berit Sveinbjörnsdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson.  Hrefna Frímannsdóttir var á fundi um Workplace. 

 

Dagskrá.

  1. Endurskoðuð rekstraráætlun fyrir árið 2019.

Fjallað um endurskoðaða rekstraráætlun fyrir árið 2019.

  1. Tækja- og búnaðarlisti 2019.

Farið yfir tækja- og búnaðarlista fyrir árið 2019, samtals eru óskir um tækjakaup um 40 m.kr.

  1. Undirbúningur ársskýrslu.

Rætt um ársskýrslu ársins 2018.  JFJ fór yfir helstu atriði sem þurfa að vera í ársskýrslu, fundarmenn sammála um að uppsetning skýrslu verði með svipuðu sniði og undanfarin ár.  Óskað var eftir að sendar yrðu upplýsingar um gjafir sem borist hafa.

  1. Starfsáætlun til 3 ára og endurskoðun skipurits.

Rætt um starfsáætlun til 3 ára og endurskoðun skipurits.  Gert er ráð fyrir að næsti fundur með svæðisfulltrúum fari að mestum hluta í að ræða endurskoðun starfsáætlunar, en núverandi áætlun rann út um áramótin.

  1. Velferðarstefna.

JFJ kynnti útgáfu á nýrri Velferðarstefnu samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

  1. Kynning á verkefnum mannauðsstjóra.

Vilborg Lárusdóttur fór yfir helstu verkefni mannauðsstjóra.  Skýrt kom fram hjá henni að hún liti á starfið sitt sem stuðning fyrir starfsmenn og stjórnendur.  Fram kom í máli hennar að gert verði ráð fyrir innleiðingu Workplace fyrir alla starfsmenn þann 12. febrúar. Fór yfir og kynnti kosti Workplace.

Fulltrúar buðu Vilborgu velkomna til starfa.

  1. Reikninga- og innheimtukerfi fyrir HVE.

ÁÁ fjallaði um innleiðingu á nýju reikninga- og innheimtukerfi fyrir HVE.

  1. Breyting á gjaldskrá fyrir mötuneyti HVE og á út seldum mat.

ÁÁ lagði fram tillögu að nýjum verðum fyrir mötuneyti HVE og verð á út seldum mat.  Nefndi að hin nýja gjaldskrá tæki mið af skattamati Ríkisskattstjóra og að verðskrá hafi ekki breyst frá 1. apríl 2016.

Verðskrá frá 1. mars 2019:

Hádegisverður, eftirréttur innifalinn   520

Eftirréttur                                                    170

Kvöldverður                                                260

Næturmatur                                                260

Morgunverður                                            230

Skyr                                                               170

Súpa og brauð                                             170

Kökuskammtur                                           120

Salatbar og súpa                                         520

Ávextir 1 stk                                                100

Gestir og þjónustuaðilar greiði tvöfalt gjald.

Ofangreind gjaldskrá var samþykkt og tekur gildi frá 1. mars 2019. 

  1. Tímaskráningarkerfi. Endurskoðun á reglum og samþykktir vinnuskýrslna.

ÁÁ lagði fram tillögu að endurskoðum reglum um viðveru- og fjarvistarskráningu í vinnustund.

Reglurnar voru samþykktar.

  1. Undirbúningur starfsmannafunda.

Rætt um fyrirhugaða starfsmannafundi.

  1. Önnur mál.

JBA ræddi um um innleiðingu á nýju auðkennis- og lyfjaeftirlitskerfi fyrir stofnanir og lyfsölu.  En fyrir liggur að setja þarf upp búnað til að fylgjast með mögulegum fölsunum á lyfjum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.